Mál strokufangans Sindra Þórs Stefánssonar verður einungis dularfyllra. Hann hélt úti vefsíðu, 55.is, þar sem ekkert er að finna nema nokkur GPS-hnit. Öll hnitin beinast að staðsetningum norðan við Akureyri, þar sem Sindri var með lögheimili.
Líkt og hefur verið greint frá þá flúði Sindri land með vél Icelandair klukkan 07:34 til Svíþjóðar og lenti á Arlanda-flugvellinum í gær. Ekki er talið að hann hafi framvísað fölsuðum skilríkjum enda skilríkja oftast ekki krafist þegar flogið er innan Schengen.
Sindri sat í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að innbrotum í þrjú gagnaver þar sem tölvubúnaði að verðmæti um 200 milljóna króna var stolið. Tölvubúnaðurinn hefur aldrei fundist og hafa eigendur heitið sex milljónum króna í fundarlaun.
Ljóst er af Facebook-síðu hans að Sindri var nokkur ofurhugi. Þar birtir hann myndir af sér í fallhlífastökki og á hraðskreiðu mótorhjóli. Sindri á að baki nokkurn sakaferil en flestir dómar hans tengdust fíkniefnum. Síðast var hann dæmdur fyrir kannabisræktun. Líkt og DV greindi frá í gær þá deildi hann neyslusögu sinni árið 2013 en þá hafði hann verið edrú um nokkurt skeið.
„Við tók í neyslunni hreint og beint helvíti. Ég var farinn að vinna fyrir djöfulinn sem var fastur í mér, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að reyna hætta fíkniefnaneyslu. Ég var á vergangi og á nokkrum tímapunktum var ég hreint og beint á götunni, leitandi mér að svefnstað,“ sagði Sindri meðal annars.
Síðastliðinn febrúar greindi RÚV frá því að Sindri, sem þá var ekki nafngreindur, héldi úti fyrrnefndri vefsíðu. Í þeirri frétt var sagt að Sindri hafi verið spurður um GPS-hnitin í yfirheyrslum en neitað að tjá sig. Lögregla fór á vettvang en fann ekkert.
Íslendingar á vefsíðunni Reddit komust á snoðir um GPS-hnitin í gær og einn notandi, Maggipedia, fór á vettvang. „Ég ásamt bróður mínum fórum í leiðangur. Spenntir drengir í leit að ævintýrum og mögulega þýfi en ekkert fannst á þessum 4 hnitum nema móar og grjót,“ skrifaði hann og birti myndir af vettvangi sem má sjá hér fyrir neðan.
Aðrir íslenskir notendur veittu því athygli að allar staðsetningar eiga það sameiginlegt að vera góð kennileiti ef þú hyggst fela eitthvað. „Bakvið eða ofan í ræsinu, fyrir aftan runnann, milli trjánna og milli steinanna. Gaurinn var með kannabisræktun og þetta væru allt saman góðir drop staðir fyrir kíló pakkningu,“ skrifar einn.