fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Áskorandi er fæddur. Veltir Caruana Carlsen úr sessi?

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 15. apríl 2018 13:00

Fabiano Caruana tekur við hamingjuóskum frá heimsmeistaranum Magnusi Carlsen. Kapparnir munu mætast í einvígi um titilinn í nóvember.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fabiano Caruana tekur við hamingjuóskum frá heimsmeistaranum Magnusi Carlsen. Kapparnir munu mætast í einvígi um titilinn í nóvember.

Undanfarnar vikur hafa skákáhugamenn fylgst hugfangnir með framgangi Bandaríkjamannsins Fabiano Caruana, sem loksins virðist vera að stinga aðra bestu skákmenn veraldar af og verða raunveruleg ógn fyrir heimsmeistarann, Norðmanninn ógurlega Magnus Carlsen. Caruana er 25 ára gamall, fæddur árið 1992, og er því tveimur árum yngri en Carlsen. Hann var undrabarn í skák, líkt og Norðmaðurinn, og vann sig hratt og örugglega upp í hóp bestu skákmanna heims. Ólíkt Carlsen þá hefur Caruana átt erfitt með hrista aðra keppinauta af sér. Inni á milli hefur hann þó sýnt snilli sína svo um munar. Skemmst er að minnast sigur hans á Sinquefield-mótinu í Bandaríkjunum þar sem hann vann sjö fyrstu skákir sínar í mótinu, þar á meðal gegn Carlsen, og stakk aðra keppendur af. Sigur Caruana í því móti er talinn vera eitt mesta mótaafrek sögunnar. Það eru þó afrek síðasta mánaðar sem hafa skotið Caruana aftur fram í sviðsljósið svo um munar. Hér verða þau rakin.

Átta bestu bárust á banaspjót

Dagana 10.–28. mars fór Áskorendamótið fram í Berlín. Þar komu saman átta sterkustu skákmenn heims, að heimsmeistaranum undanskildum, til þess að berjast um réttinn til þess að skora á Magnus í einvígi um æðsta titilinn síðar á árinu. Auk Caruana voru keppendur fyrrverandi áskorandinn Sergey Karjakin frá Rússlandi, fyrrverandi heimsmeistarinn Vladimir Kramnik, Armeninn Levon Aronian, Shakriary Mamedyarov frá Aserbaídsjan, Alexander Grishcuk frá Rússlandi, Kínverjinn Ding Liren og Bandaríkjamaðurinn Wesley So.

Caruana var vissulega einn af þeim sigurstranglegri í mótinu. Veðbankar töldu hann og Aronian líklegasta en rétt á eftir þeim Mamedyarov, sem hefur undanfarið verið annar stigahæsti skákmaður heims, og Kramnik, sem er sá eini sem hefur unnið goðsögnina Garry Kasparov í einvígi og býr yfir ótrúlegri reynslu.

Þrátt fyrir það voru aðdáendur Caruana mjög efins fyrir mótið enda hafði Bandaríkjamanninum, eins og áður segir, gengið bölvanlega að slíta sig frá öðrum hælbítum Carlsen. Þegar á reyndi í baráttunni um heimsmeistaratitilinn þá hafði hann klikkað og því var erfitt að vera kokhraustur Caruana-aðdáandi fyrir mótið.

Sögulegur sigur gegn Kramnik

Áskorendamótið fór vel af stað fyrir Caruana en hann sigraði landa sinn Wesley So, sem oft hefur reynst honum erfiður, í fyrstu umferð. Þrátt fyrir það var hann kirfilega í skugga Kramniks fyrstu umferðirnar. Rússinn reyndi tefldi einhverja glæsilegustu skák seinni tíma gegn Armenanum Aronian í þriðju umferð og tók þar með forystu í mótinu.

Kramnik og Caruana mættust síðan í 4. umferð mótsins í skák sem er óhemju mikilvæg í skáksögulegu samhengi. Skákin var óhemju flókin en að lokum, eftir sex klukkutíma setu, gerði reynsluboltinn mistök og Caruana hafði betur. Þar með náði Bandaríkjamaðurinn forystu í mótinu og hana lét hann aldrei af hendi eftir það. Caruana sigraði í mótinu með 9 vinningum af 14 en næstir urðu Mamedyarov og Karjakin með 8 vinninga. Þar með var Fabiano Caruana orðinn fyrsti Bandaríkjamaðurinn síðan Bobby Fischer var og hét til þess að vinna sér inn rétt til þess að tefla um heimsmeistaratitilinn í skák. Skáksamfélagið þar vestra fór á hliðina.

Örþreyttur á ofurmóti

Auðsýnt var að öllum heimsins áhyggjum var létt af Caruana við sigurinn. Hann hafði þó lítinn tíma til þess að fagna því næst á dagskrá var GRENKE-ofurmótið sem fram fór í Karlsruhe í Þýskalandi. Um var að ræða 10 manna mót þar sem allir keppendur tefldu við alla og meðal keppenda var heimsmeistarinn sjálfur, Magnus Carlsen, sem hafði haft það náðugt í marsmánuði við að fylgjast með keppinautum sínum berast á banaspjótum.

Caruana sagði fyrir mótið að hann ætlaði bara að reyna að skemmta sér og njóta þess að tefla. Flestir bjuggust því við öruggum sigri Carlsen. Örlögin höguðu því þannig að kapparnir mættust í fyrstu umferð og var skákarinnar beðið með mikilli eftirvæntingu. Lengi vel leit út fyrir að Carlsen myndi hafa Caruana undir en sá bandaríski náði að halda jafntefli með herkjum.

Eftir það héldu Bandaríkjamanninum engin bönd og hann endaði með því að bera sigur úr býtum í mótinu með 6,5 vinninga af 9 mögulegum, heilum vinningi á undan Magnusi Carlsen. Úrslitin komu skáksamfélaginu gríðarlega á óvart enda nánast ómannlegt að vinna tvö gríðarlega sterk skákmót með svona skömmu millibili.

Það var auðheyrt á Caruana að hann trúði því varla sjálfur hvað hefði gerst. „Ég leiddi ekki einu sinni hugann að því að vinna þetta mót. Þrátt fyrir kæruleysislega taflmennsku á köflum þá fékk ég tækifæri í skákunum sem ég náði að nýta mér,“ sagði Caruana alsæll í viðtali eftir mótið. Hann sagðist hafa verið gjörsamlega orkulaus meðan á mótinu stóð. „Ég hafði ekki þrek til þess að undirbúa mig fyrir skákir heldur treysti á undirbúninginn fyrir Áskorendamótið og reyndi að hvílast vel fyrir skákirnar. Ég tefldi ekki sérstaklega vel en ég var fullur sjálfstrausts og það skipti máli,“ sagði Caruana og taldi sig hafa verið heppinn.

Úrslitin gefa góð fyrirheit fyrir heimsmeistaraeinvígið í nóvember þar sem margt bendir til að Caruana geti orðið raunveruleg ógn fyrir Magnus Carlsen. Reynsluleysi Caruana í einvígjum gæti þó vegið þungt en það er ljóst að Bandaríkjamaðurinn mun undirbúa sig gríðarlega vel og selja sig dýrt, þetta er hans stærsta tækifæri.

 

 

[Aukabox með barnamyndum]:

Svipað ferðalag undrabarnanna

Fabiano Luigi Caruana fæddist í júlí 1992 og er því tæpum tveimur árum yngri en Magnus Carlsen sem er fæddur í nóvember 1990. Fabiano er fæddur í Miami-borg í Bandaríkjunum en foreldrar hans eru af ítölsku bergi brotnir. Fabiano  ólst upp í Brooklyn-hverfi New York-borgar. Hann náði fljótlega eftirtektarverðum árangri og svo fór að foreldrar hans ákváðu að flytjast með hann til meginlands Evrópu þar sem mun meira af sterkum skákmótum eru haldin. Þá ákváðu þau að Fabiano myndi tefla undir ítölsku flaggi því þar var meiri stuðning að fá. Þessi fórn foreldra Fabiano er sambærileg ákvörðun foreldra Magnusar Carlsen um svipað leyti. Þau ákváðu að taka Magnus úr skóla eitt ár og ferðast um heiminn til þess að etja kappi við atvinnumenn í skák. Fabiano varð stórmeistari í skák 14 ára og 11 mánaða gamall. Hann tefldi fyrir Ítalíu til ársins 2015 þegar hann ákvað að tefla aftur fyrir Bandaríkin. Vonir standa til að væntanlegt einvígi hans við Magnus Carlsen muni skapa sannkallað skákæði í Bandaríkjunum. Það mun tíminn einn leiða í ljós.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat