fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusFréttirKynning

AstaZan er hjálpin sem enginn hlaupari ætti að vera án

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 1. apríl 2018 22:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

AstaZan frá Lifestream er af vísindamönnum, fjölmörgum læknum og íþróttafólki talið yfirburða gott andoxunarefni fyrir íþróttafólk, langhlaupara og aðra sem leggja mikið á líkama sinn. AstaZan dregur úr og fyrirbyggir harðsperrur, bólgur og eymsli í vöðvum og sinum. Vöðvarnir jafna sig fyrr eftir mikið álag og meiðsli. Hlauparar eru því fljótari að jafna sig á milli keppni og erfiðra æfinga. AstaZan viðheldur styrk og eykur þol vöðvanna, vinnur gegn og lagar sinaskeiðabólgu og er frábært fyrir þreytta og auma fætur.

Margir hlauparar sem keppa að því að auka árangur sinn í hlaupum telja að AstaZan sé mikilvægur stuðningur til að ná betri tíma og endurheimtin er greinilega hraðari. Hlaup utanvega og fjallahlaup reyna á allan skrokkinn og þá er gott að hafa AstaZan þar sem það er gott við bólgum,  eymslum, festumeinum.

AstaZan er ein öflugasta andoxunarvörn sem vitað er um og nær virknin til stoðkerfis, heila, tauga, húðarinnar og  styður hjarta og æðaheilsu samkvæmt viðurkenndum vísindarannsóknum. Aukin styrkleiki varnarkerfis melaníns í húðinni veldur því að húðin brennur síður í sól og verður mun fyrr fallega sólbrún. Þar sem hlauparar hlaupa oft líka í mikilli sól er kostur að AstaZan styrkir varnir húðarinnar. Ávallt skal þó líka nota góða sólarvörn.

Líkamsræktarfólk mælir með AstaZan

Margar rannsóknir hafa sýnt fram á góða virkni astaxanthin í Lifestream AstaZan fyrir  stoðkerfið, auk þess segjast margir finna fyrir meira þoli og úthaldi við áreynslu. Margir vitna um að hafa losnað við festumein, bólgur og verki við notkun á AstaZan. Í blindprófs samanburðarrannsókn jók lyfleysuhópurinn vöðvaþol um 22% á 12 vikum meðan astaxanthin-hópurinn jók þol og styrk vöðvanna um 62%. Astaxanthin-hópurinn fékk einnig minni harðsperrur, minni eymsli og hraðari endurheimt. Hlauparar og aðrir íþróttaiðkendur segjast finna mikinn mun við að nota AstaZan, aukið þol og styrk vöðva við álagsæfingar og það dregur úr harðsperrum og beinhimnubólgu.

Afreksfólk og líkamsræktarfrömuðir bera AstaZan vel söguna

Þannig segir Mark Kislich, hinn þekkti líkamsræktar- og elíte-þrekþjálfari hjá Sporthúsinu: „AstaZan frá Lifestream er eina bætiefnið sem ég mæli með fyrir alla. Hvort sem það er afreksfólk í íþróttum eða þeir sem stunda líkamsrækt, þá er AstaZan eitt af  fáum bætiefnum sem þú virkilega finnur mun og sérð framfarir af. Færð meiri orku, líður betur og allt er auðveldara og skemmtilegra. Sjálfur get ekki hugsað mér að vera án AstaZan.“

Sjöfn Jónsdóttir, fimleikaþjálfari og klifurmeistari, segir: „Ég var orðin slæm í líkamanum eftir áratuga kennslu í klifri og íþróttum en þegar ég byrjaði á AstaZan losnaði ég við strengi, stirðleika, bólgur og eymsli í líkamanum. Með AstaZan fékk ég meira vöðvaþol og losnaði við gigtarverki. Virknin sýndi sig ótrúlega fljótt. Ég hef núna almennt meira úthald og styrk, mér líður mikið betur.“

Þá skrifar hinn þekkti lífsstílsbloggari, Gyða Dröfn, um AstaZan, en færslan er ekki kostuð og hún keypti vöruna sjálf:

„AstaZan eru litlir belgir sem innihalda andoxunarefnið astaxanthin. Mikið hefur verið talað um andoxunarefni seinustu ár, enda eru kostir þeirra fjölmargir. Það sem þetta sérstaka andoxunarefni gerir er til dæmis að styrkja og vernda húðfrumurnar, svo húðin brennur síður í sól. Ég hef oft tekið E-vítamín til þess að hjálpa húðinni minni – enda er það einstaklega gott fyrir húðina.

AstaZan hjálpar líka til við að hjálpa vöðvunum og liðunum að jafna sig eftir æfingar. Ég finn til dæmis alltaf fyrir því þegar ég tek það, að ég fæ miklu minni strengi eða harðsperrur! Líka ef ég fæ strengi, þá eru þeir einhvern veginn miklu vægari og ekki svona sárir eins og þeir verða stundum, ef maður er t.d. að gera nýjar æfingar.“

AstaZan fæst í öllum apótekum, í Heilsuhúsinu, Hagkaupum, Nettó, Grænni heilsu, Fjarðarkaupum og Fríhöfninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum