fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Unga fólkið sem vill breyta borginni

Spennandi sveitarstjórnarkosningar fram undan – Ungir í framboði sem vilja breytingar

Ari Brynjólfsson
Laugardaginn 3. mars 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það stefnir í spennandi borgarstjórnarkosningar í vor. Aldrei hafa jafn margir verið í framboði og aldrei jafn mörg sæti í boði. Áhugi ungs fólks á stjórnmálum fer dvínandi en samkvæmt tölum Hagstofunnar var kosningaþátttaka fólks á aldrinum 20 til 29 ára undir 50 prósentum í síðustu sveitarstjórnarkosningum samanborið við kosningaþátttöku fólks á aldrinum 65 til 69 ára sem var yfir 80 prósent. DV ræddi við nokkra frambjóðendur undir þrítugu í Reykjavík til að komast að því hvað vakti áhuga þeirra á pólitík og hvað þeir vilja gera fyrir borgina.


Vill breyta íslenskri menningu

Dóra Björt Guðjónsdóttir

Dóra Björt Guðjónsdóttir

29 ára

Alþjóðafræðingur

Frambjóðandi í 1.–2. sæti í prófkjöri Pírata í Reykjavík

Dóra Björt er fyrrverandi formaður Ungra Pírata og býður sig fram sem oddvita Pírata í Reykjavík. Hún er alþjóðafræðingur og tók nýverið við sem formaður Femínistafélags Pírata. „Ég er Pírati og femínisti sem fer vel saman því að þú getur ekki haft lýðræði án jafnréttis.“

Dóra Björt ætlar sér stóra hluti. „Ég vil breyta íslenskri menningu, ég vil skapa lýðræðismenningu þar sem fólk er tilbúið að skipta um skoðun, taka mótrökum, kynna sér málin til hlítar og leggur áherslu á að lýðræði og tjáningarfrelsi skiptir máli,“ segir Dóra. Hún, sem bjó í Noregi í sjö ár. „Fólk talar miklu meira um lýðræði þar en hér. Ég tek sem dæmi einkafyrirtæki þar sem er engin formleg krafa um faglega ráðningu, þá er það almenningur sem gerir kröfu um gagnsæi og lýðræði. Þetta er það sem vantar hér. Hér horfum við alltaf á lagabókstafinn og reynum að fara framhjá honum.

Ég er ung, ég hef séð hvernig hægt er að gera hlutina betur og tel mig vera með snertiflöt við kynslóðina sem er að vaxa úr grasi og hvernig hún vill sjá borgina. Við viljum nota almenningssamgöngur, við viljum ekki þurfa að eiga bíl, við þurfum ekki risastórt hús og viljum lifa innihaldsríku lífi í borgarsamfélagi.“


Einstaklingurinn í forgangi

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

27 ára

Sálfræðinemi

  1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Ragnhildur Alda María, iðulega kölluð Alda, þjáist af óbilandi bjartsýni og þolinmæði, því ætlar hún að ná langt í stjórnmálum. „Hingað til hef ég aðallega verið að bardúsa í grasrótinni en þegar ég byrjaði fyrir þremur árum var markmiðið að stuðla að því að það væru ferlar í samfélaginu sem tækju með markvissari hætti á geðheilbrigðismálum,“ segir Alda.

Hún vill að einstaklingar séu í forgangi. „Í stuttu máli þá fylgi ég þeirri forsendu að velferð samfélagsins, efnahagslega sem og félagslega, sé fólgin í mannauði einstaklinga og ef samfélagið býr þannig í haginn að allir fái tækifæri til að styðja sjálfa sig í gegnum lífið þurfa ákveðnar forsendur að vera fyrir hendi. Þær eru tækifæri til bæði menntunar sem og að hafa þak yfir höfuðið án þess að finna sig í fátækragildru fyrir vikið, tækifæri til atvinnu og tækifæri til skilvirkrar heilbrigðisþjónustu.“

Alda segir húsnæðisvandann í Reykjavík vera til skammar. „Ég veit um mörg dæmi þess að ungir sem aldnir og einstæðir foreldrar séu að lenda á götunni með jafnvel engan annan kost en að leigja herbergi í kjallara fjölbýlis fyrir 80.000 krónur á mánuði, þar sem ekki er einu sinni sturtuaðstaða. Það er hægt að benda í margar áttir en staðreyndin er sú að þetta er framboðsvandi að mestu leyti, og hlutverk núverandi borgarstjórnarmeirihluta í því er til skammar. Þessu verður að breyta.“


Kynntist borgarmálunum í gegnum félagsstörf

Ragna Sigurðardóttir

Ragna Sigurðardóttir

25 ára

Læknanemi

  1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík

Ragna er fráfarandi formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands og býður sig fram í 9. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Ég er þriðja árs læknanemi en hef verið í árs leyfi á meðan ég er formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Ég er nýbúin að skrá mig í flokkinn, mér fannst best að vera óflokksbundin í störfum mínum í Stúdentaráði.“

Ragna var áður formaður Röskvu og kom meðal annars að stofnun geðfræðslufélagsins Hugrúnar, hún hefur lært mikið í gegnum félagsstörfin. „Ég hef kynnst vel húsnæðisvanda stúdenta og ungs fólks og hef unnið með núverandi forystu í borginni varðandi uppbyggingu stúdentaíbúða. Ég hef góða reynslu af því að vinna með Degi borgarstjóra. Það er að hluta til ástæða þess að ég gef kost á mér núna, ég vil að þetta góða starf meirihlutans í borginni haldi áfram.“

Hún upplifir ekki að ungt fólk hafi lítinn áhuga á stjórnmálum. „Ef við komum ekki inn í stjórnmálin til að benda á jákvæðu hliðarnar á stjórnmálum og virkja annað ungt fólk til þátttöku þá missum við okkar rödd, þá fyrst verður mikil hætta á að ungt fólk missi allan áhuga.“


Ætlar að slaufa skriffinnskunni

Örn Bergmann Jónsson

Örn Bergmann Jónsson

27 ára

Bóksali

  1. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík

„Ég er í Miðflokknum því við erum kerfisbreytingaflokkur, við viljum ekki að þeir sem eru ofsaríkir verði ofsaríkir endalaust og að lýðræðið sé fært nær fólkinu,“ segir Örn Bergmann, frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík. Hann hefur miklar áhyggjur af stöðu ungs fólks í borginni. „Í fyrsta skipti hefur unga kynslóðin það verr en kynslóðin á undan. Ef þetta heldur svona áfram þá missum við fólk úr landi. Unga fólkið vill vera í Reykjavík og því þurfum við að byggja. Það eru tólf sveitarfélög á Íslandi sem hafa byggt meira en Reykjavík, það er bagaleg staða.“

Örn segir nauðsynlegt að byggja húsnæði, er hann mjög hrifinn af hugmyndum um húsnæðissamvinnufélag. „Borgin getur þá útvegað íbúðir sem fólk getur leigt á viðráðanlegu verði, það er ekkert sérstaklega fyrir ungt fólk eða eldri borgara. Hann segir litlu máli skipta hvort byggt sé miðsvæðis eða í úthverfum. „Mér finnst borgin vera alveg nógu þétt, það má alveg þétta byggð en við eigum nóg af borgarlandi þar sem er hægt að byggja á mjög skömmum tíma. Það er hægt að útvega land strax í vor og afhenda íbúðirnar í janúar. Það þarf ekki alla þessa skriffinnsku.“


Getur verið leikkona og í pólitík

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm

29 ára

Leik- og söngkona

  1. sæti á lista Vinstri – grænna í Reykjavík

„Ég var lengi vel í hálfgerðri afneitun fyrir áhuganum á að taka þátt í pólitík. Ég hef alltaf fylgst grannt með öllu á hliðarlínunni en sannfærði sjálfa mig um að mig langaði ekkert að vera með. Einnig hef ég, eins og margar konur, lent í því að vera sagt að ég ætti ekkert endilega eitthvert erindi, ég væri alltof mikil tilfinningavera, ekki nógu mikill nagli og allt það sem við fáum að heyra. En eftir því sem ég hugsa það meira þá sé ég ekkert að því að vera tilfinningavera í pólitík. Pólitík snýst um fólk og fólk er tilfinningaverur,“ segir Hreindís Ylva. Hún er leik- og söngkona og því eru listir og menning eitt af hennar stærstu hugðarefnum.

„Reykjavík er um margt stórkostleg borg og það er ástæða fyrir því að ég valdi að flytja heim. Hér er fullt af möguleikum og það sem heillaði mig er að hér get ég verið með mörg járn í eldinum. Ég get verið leikkona OG í pólitík.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu