Lastið fá forstjórar og lykilstjórnendur N1, Eimskipa, Símans, Reita og HB Granda en ársreikningar þessara fyrirtækja hafa afhjúpað þá grímu- og taumlausu græðgi og sjálftöku sem heltekið hefur stjórnendur þessara fyrirtækja. Græðgi sem endurspeglast í launahækkunum sem nema mánaðarlega frá 300 þúsundum upp í eina milljón króna. Rétt er að geta þess að lífeyrissjóðir launafólks eiga um eða yfir 50% í öllum þessum fyrirtækjum.
Lofið fá þessir sömu forstjórar sem hafa sýnt og sannað fyrir launafólki að nægt svigrúm er til launahækkana til handa almennu verkafólki og gefið okkur í verkalýðshreyfingunni vegvísi að þeirri kröfugerð sem lögð verður fram í komandi kjarasamningum. Lofið fá líka Verkalýðsfélag Akraness, VR, Efling og Framsýn sem hafa ákveðið að standa þétt saman í komandi kjarasamningum og láta kné fylgja kviði við að knýja fram kjarabætur til handa sínum félagsmönnum.