fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Umboðsmaður verði lagður niður

Ritstjórn DV
Laugardaginn 24. mars 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að nokkur skjálfti sé meðal ýmissa starfsmanna borgarinnar, enda borgarstjórnarkosningar framundan og hætt við að með nýrri forystu komi nýtt og breytt verklag. Gjarnan er minnst á kústa eða vendi í þessu sambandi. Bera slíkar breytingar gjarnan hið hlutlausa og saklausa nafn „skipulagsbreytingar“ eða „hagræðing“ þótt það feli ávallt í sér uppsagnir, mannabreytingar eða jafnvel upprætingu heilu embættanna.

Embætti Umboðsmanns borgarbúa var stofnað árið 2013 til þess að vera eins konar hjálparhella og milliliður borgarbúa gagnvart skrifræðiskerfinu. Eða líkt og segir á heimasíðunni: „… styrkja tengslin milli borgarbúa og borgarkerfis og stuðla að auknu réttaröryggi borgarbúa.“

Orðið á götunni er að Umboðsmaður borgarbúa telji nú starfsöryggi sínu verulega ógnað. Embættismaðurinn ku vera sveittur við lyklaborðið að uppfæra ferilskrá sína og líta í kringum sig eftir nýju starfi. (Embætti Umboðsmanns Íslands er víst laust, þar sem Einar Bárðarson er kominn í vinnu hjá Hafnarfjarðarbæ.)

Ástæðan er sú að Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, virðist ekki sérstaklega upp með sér yfir tilgangi eða afköstum embættisins. Segir Eyþór að þangað geti borgarbúar leitað og á meðan trufli þeir ekki borgarfulltrúa eða borgarstjóra með kvabbi sínu, þannig komi borgarstjóri sér undan að veita borgarbúum áheyrn. Hann tekur fram að umboðsmaðurinn hafi engin völd og skili því aðeins áliti eða frávísun til fólks sem þangað leiti. Hann nefnir að það geti tekið allt upp undir 80 daga fyrir umboðsmanninn að fá svör frá skipulagssviði og að kerfið finni þar á eigin skinni það sem borgarbúar þurfa að búa við, þar sem algengasta niðurlag fundargerða þar á bæ sé orðið: „frestað“. Þessu segist Eyþór ætla að breyta.

Orðið á götunni er að setjist Eyþór í borgarstjórastólinn verði embætti Umboðsmanns borgarbúa lagt niður í sinni núverandi mynd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“