Sveinn Elías Elíasson hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefna- og tollalagabrot. Hann var dæmdur fyrir að hafa haft í vörslum sínum 8 ml. af anabólískum sterum og 35 kannabisplöntur. Hann játaði brot sín og þarf að greiða 183.507 krónur í sakarkostnað.
Sveinn Elías er af mörgum landsmönnum kunnur sem NR1DAD eftir að hann komst í fréttirnar haustið 2013. Þá hafði hann lagt Range Rover-glæsikerru sinni í tvö stæði fyrir fatlaða við inngang Vínbúðarinnar á Dalvegi í Kópavogi. Á númeraplötu bílsins stóð NR1DAD. Mynd náðist af þessu, sem margir fjölmiðlar birtu og vakti hegðun hans hneykslan.
Atvikið vakti mikla athygli þá og fyrir tveimur árum sagðist Sveinn Elías enn leggja í tvö stæði og skammaðist sín ekkert fyrir það. Þá höfðu gárungar rifjað atvikið upp innan hópsins Verst lagði bílsins og mætti Sveinn Elías sjálfur á svæðið til að verja sig. „Leggja rétt og leggja vitlaust og leggja ólöglega. Það er ekki bannað að leggja í 2 stæði. Á meðan það er leyfilegt samkvæmt lögum þá er ég ekkert að fara hætta því,“ sagði hann.