Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis hafa lagt til frumvarp um lækkun kosningaaldurs í sveitarstjórnarkosningum úr 18 árum í 16. Sjálfstæðismenn í nefndinni, Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson, vilja þó ganga lengur og sagði sá fyrrnefndi í útvarpsfréttum á Bylgjunni í gær að þeir vilji ganga lengra. Óli Björn sagði þá vilja lækka kosningaaldur í öllum kosningum niður í 16 ára. Auk þess vildu þeir færa sjálfræðisaldur sem og öll borgaraleg réttindi niður í þann aldur.
En hvað með áfengiskaupaaldur? Af svörum Brynjars í samtali við DV að dæma er hann fylgjandi því að lækka hann, í það minnsta í 18 ára. „Nú er það svo að löggjafinn hefur ákveðið að við hættum að vera börn 18 ára og teljumst því fullorðin. Þeir sem eru fullorðnir geta þar með tekið ábyrgð á eigin lífi hljóta að mega kaupa áfengi. Sama á við ef löggjafinn ákveður að við verðum fullorðin 16 ára,“ segir Brynjar.
Hann segir eitt það mikilvægasta hvað þetta varðar sé samkvæmni í löggjöf. „Hvorki ég né Óli Björn höfum svo sem mótað okkur skoðun á því hvenær við eigum að teljast fullorðin en sumum þingmönnum finnst að við eigum að vera fullorðin 16 ára þegar kemur að kosningum til sveitastjórna en börn í alþingiskosningum og flestu öðru. Ég skil ekki svona hringlanda. Samkvæmni í löggjöf er mikilvæg og ekki láta duttlunga, lýðskrum og tískubylgjur ráða för þar sem allt rekst á hvers annars horn.“