fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Freyja aðstoðar formann Samfylkingarinnar

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 21. mars 2018 10:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freyja Steingrímsdóttir, stjórnmála- og upplýsingaráðgjafi, hefur verið ráðin pólitískur ráðgjafi Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar.

Í tilkynningu frá Samfylkingunni kemur fram að Freyja hafi síðustu ár starfað við stjórnun herferða og almannatengsl, nú síðast fyrir Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Þá hafi hún meðal annars starfað sem verkefnastjóri fyrir Evrópuþingkosningar, unnið að upplýsingamálum fyrir Eftirlitsstofnun EFTA og sinnt stjórnmála- og upplýsingaráðgjöf víða um Evrópu og í Bandaríkjunum fyrir fyrirtækið Indigo Strategies.

„Freyja hefur unnið til fjölda evrópskra verðlauna (Polaris Awards EAPC) fyrir herferðir sem hún hefur stýrt. Árið 2017 vann hún fern verðlaun fyrir málefnaherferð með það að markmiði að þrýsta á Framkvæmdarstjórn ESB að samþykkja löggjöf um vinnuvernd. Í síðustu viku vann hún síðan aftur til tveggja verðlauna fyrir herferð sem hún mótaði og stýrði fyrir evrópsku verkalýðshreyfinguna í flokkunum besta notkun samfélagsmiðla og besta stafræna herferðin.“

Freyja er fædd 1989 og er menntuð í stjórnmála- og jafnréttisfræðum. Hún hefur auk þess unnið að margvíslegu félagsstarfi t.d. fyrir Stúdentaráð, Unga Evrópusinna, Já Ísland, Leaderise (Young Women who Lead) og Samfylkinguna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu