fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Tommy Lee hyggst kæra son sinn fyrir líkamsárásina

Steingerður Sonja Þórisdóttir
Þriðjudaginn 20. mars 2018 21:30

"Kiss, Motley Crue: The Tour" - Press Conference at the Hollywood Rosevelt Hotel on March 20, 2012

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Trommuleikari Motley Crüe, Tommy Lee, stendur fast á þeim ásökunum sínum að sonur hans með Pamelu Anderson, Brandon Lee, hafi ráðist á hann. Ósætti kom upp á milli feðganna eftir að Pamela ræddi ofbeldi Tommy í hennar garð á meðan á hjónabandi þeirra stóð í sjónvarpsþætti Piers Morgan á dögunum.

Á meðan á stormasömu hjónabandi Anderson og Lee stóð var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir heimilisofbeldi.

Á þessi upprifjun Pamelu að hafa farið illa í Tommy Lee og tjáði hann í kjölfarið óánægju sína á Twitter. Sonurinn var ósáttur við þau viðbrögð föður síns og segir Tommy að Brandon hafa kýlt hann í andlitið með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund. Nú hafa fjölmiðlar ytra staðfest að Tommy ætli að fara alla leið með málið og hann hyggist kæra Brandon.

Brandon sendi tilkynningu til fjöllmiðla stuttu eftir upphaflega atvikið þar sem hann sagði að þetta væri allt saman sorglegt mál sem fyrst og fremst væri hægt að skrifa á alkóhólisma föður síns. Faðir hans þvertekur fyrir þá staðhæfingu og segist fá sér einstöku sinnum í glas sem hljóti að vera í lagi, hann hafi unnið linnulaust í þrjátíu ár og eigi fullkomlega skilið að lyfta sér upp stöku sinnum núna eftir að hann settist í helgan stein.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“