Bú Rúnars Freys Gíslasonar, leikara og útvarpsmanns, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Þar kemur fram að skipaður hafi verið skiptastjóri og frestdagur við gjaldþrotaskiptin er 29. maí næstkomandi. Ekki náðist í Rúnar við vinnslu fréttar.
Rúnar hóf nýverið störf á útvarpsstöðinni K100, þar sem hann stýrir þættinum Ísland vaknar ásamt Loga Bergmann Eiðssyni og Friðriku Hjördísi Geirsdóttur. Auk þess starfar hann á RÚV þar sem hann sér meðal annars um dagskrárgerð Fjörskyldunnar.