fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Umfangsmiklar aðgerðir á Faxaflóa: Kafbátur var notaður til að ná upp líkamsleifunum

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 20. mars 2018 13:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV greindi frá um hádegisbilið  í dag hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknar líkamsleifar sem fundust á Faxaflóa nýverið, en upphaf málsins má rekja til veiða fiskibáts á norðanverðum Faxaflóa í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í henni kemur fram að báturinn hafi lagt úr veiðarfæri á töluverðu dýpi, en þegar dregið var inn reyndust líkamsleifar fylgja með í netinu. „Skipstjórinn skráði niður staðsetninguna og hafði samband við Vaktstöð siglinga, sem upplýsti lögreglu um málið. Í framhaldinu var skipulagt leitarsvæði og síðan var haldið á vettvang nokkru síðar með búnað sem hæfði aðstæðum, en um flóknar aðgerðir var að ræða. Sérútbúinn kafbátur var sendur niður til að taka ljósmyndir og sónarmyndir, en á sjávarbotninum reyndust vera líkamsleifar. Ekki reyndist unnt að ná þeim upp að svo stöddu enda aðstæður á vettvangi erfiðar, m.a. vegna sjólags og dýpis. Menn urðu því frá að hverfa og sæta færis, en nokkrum dögum síðar var aftur haldið á vettvang og þá tókst að ná upp líkamsleifunum. Við það var notaður annar kafbátur, sem var sömuleiðis sérútbúinn fyrir verkefni af þessu tagi,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að ekki liggi fyrir af hverjum líkamsleifarnar eru og víst sé að það muni taka einhvern tíma að leiða það í ljós. Málið er  í höndum kennslanefndar ríkislögreglustjóra, en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun ekki tjá sig frekar um málið á meðan sú niðurstaða liggur ekki fyrir. Aðgerðirnar við að endurheimta líkamsleifarnar voru umfangsmiklar, en við þær naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu góðrar aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunnar, Teledyne og Árna Kópssonar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi