fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Reyndi að sleppa við sekt með því að þykjast vera Hómer Simpson

Ritstjórn DV
Mánudaginn 19. mars 2018 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem keyrði án ökuskírteinis reyndi að sleppa við sekt með því að þykjast vera teiknimyndapersónan Hómer Simpson úr sjónvarpsþáttunum fornfrægu um Simpson-fjölskylduna.

Konan var stöðvuð við hefðbundið umferðareftirlit í Buckinghamskíri í Bretlandi í síðustu viku. Hún var ekki með ökuskírteinið á sér og lét því lögregluþjóninn fá ökuskírteini með mynd og nafni Hómers.

Bílinn var gerður upptækur og konan á yfir höfði sér sekt.

Lögreglan í Buckinghamskíri greindi frá þessu skondna atviki á Fésbók með því sem Hómer myndi segja í slíkum aðstæðum:

„D‘oh!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga