fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Innbrotahrinan skipulögð af erlendum mönnum: Póstsendingar stöðvaðar

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 14. mars 2018 16:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur víst að innbrotahrinan sem staðið hefur yfir undanfarið sé skipulögð brotastarfsemi á vegum erlendra aðila. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá embættinu.

„Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fjölda innbrota í umdæminu að undanförnu miðar vel. Framkvæmdar hafa verið húsleitir allvíða á höfuðborgarsvæðinu og lagt hefur verið hald á mikið af þýfi. Unnið er að því að hafa samband við þolendur innbrota svo hægt sé að koma hlutum aftur í réttar hendur og vel hefur gengið í þeim efnum, en þessi vinna er óneitanlega nokkuð tímafrek. Lögregla telur víst að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða þegar áðurnefnd innbrot eru annars vegar,“ segir í tilkynningu.

Lögregla segir að verðmæti þýfisins hleypi á milljónum króna. „Hópur lögreglumanna hefur unnið sleitulaust að rannsókninni, en starfsmenn annarra deilda embættisins hafa jafnframt verið kallaðir að verkefninu eftir því sem við á. Rannsóknin er viðamikil, en á þriggja mánaða tímabili frá desember til febrúar voru tæplega 130 innbrot í heimahús tilkynnt til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar af um 50 í síðasta mánuði. Í mars hafa 5 innbrot í heimahús verið tilkynnt til lögreglu og því virðist sem hægt hafi á þessari óheillaþróun.

„Ljóst er að verðmæti stolinna muna hleypur á milljónum og í sumum tilvikum er jafnframt um að ræða muni sem hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigendur þeirra. Auk húsleita hefur lögreglan stöðvaði póstsendingar, sem voru á leið úr landi og innihéldu þýfi. Eins og fram hefur komið hafa flest innbrotanna átt það sameiginlegt að vera framin á daginn og að stolið sé skartgripum og peningum, en önnur verðmæti látin ósnert. Oftar en ekki virðast skartgripir og peningar á heimilum vera geymdir í svefnherbergjum og þangað hafa þjófarnir leitað,“ segir í tilkynningu.

Síðastliðinn föstudag voru þrír karlmenn handteknir í þágu rannsóknar og voru þeir úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. „Áður höfðu fjórir karlar verið handteknir vegna málsins og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Einum þeirra hefur verið sleppt og annar er vistaður í úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda. Þeir sex, sem eru í haldi lögreglu í þágu rannsóknarinnar, eru allir erlendir ríkisborgarar,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Lögregla ítrekar að íbúar fylgist vel með grunsamlegum mannaferðum: „Sem fyrr er ítrekað að fólk láti lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum, og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan.

„Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin. Sömuleiðis er mikilvægt að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með tilkynningu á samfélagsmiðlum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Í gær

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Í gær

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Í gær

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk
Fréttir
Í gær

Grunur um manndráp á Akureyri

Grunur um manndráp á Akureyri