fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

5 sem gætu tekið við Barnavernd Reykjavíkur

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. febrúar 2018 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnavernd Reykjavíkur hefur verið harðlega gagnrýnd eftir að starfsmaður var handtekinn grunaður um að hafa beitt skjólstæðinga stofnunarinnar kynferðisofbeldi. Þá starfaði þar líka á síðasta ári maður sem grunaður er um vændisstarfsemi og að hafa falsað niðurstöður þvagprufa hjá skjólstæðingum. Móðir fórnarlambs sagði lögreglu árið 2015 að níðingur starfaði hjá Barnavernd og systir annars fórnarlambs segist hafa látið Barnavernd vita. Ljóst er að eitthvað er að hjá Barnavernd Reykjavíkur en örvæntið ekki, þetta fólk gæti gegnt starfi Halldóru, framkvæmdastjóra Barnaverndar Reykjavíkur, með sóma.

Örn Árnason / afi

Örn Árnason sló í gegn um árabil á Stöð 2 sem afi. Margir sem eiga börn í dag ólust upp með afa á Stöð 2 og myndi Örn Árnason í því hlutverki án efa efla traust fólks á hinni umdeildu Barnavernd.

Eygló Harðardóttir

Eygló er reynslumikil úr stjórnkerfinu en hún var ráðherra félagsmála á árunum 2013 til 2017. Hún hefur mikinn skilning á erfiðleikum barna en hún ólst upp í verkamannabústöðunum í Breiðholtinu.

Gói

Mynd: einar@birtingur.is einar@birtingur.is

Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói, er mjög barngóður enda stjórnaði hann Stundinni okkar af miklum sóma fyrir nokkrum árum. Gói útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2005 og getur komið inn með ferskan blæ.

Salvör Nordal

Fáir vita betur hvað er gott siðferði en Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Hún er einnig mjög vel að sér í málefnum barna en hún var skipuð umboðsmaður barna í fyrra.

Magnús Scheving

Ef það er einhver Íslendingur sem getur bjargað hverju sem er þá er það Íþróttaálfurinn. Fáir ef einhverjir hafa lagt meira á sig líkamlega til að stuðla að heilsu og velferð barna en Magnús Scheving.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala