fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Kona á höfuðborgarsvæðinu fann 15 milljónir í veskinu sínu

Auður Ösp
Föstudaginn 2. febrúar 2018 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem búsett er á höfuðborgsvæðinu datt svo sannarlega í lukkupottinn í seinasta mánuði. Konan var að taka til í veskinu sínu eitt kvöldið og fann þar miða sem hún hafði keypt í Happahúsinu á mikilli hraðferð í byrjun janúar. Um var að ræða vinningsmiðann í Lottó frá 13.janúar.

Í tilkynningu frá íslenskri getspá kemur fram að konan hafi stungið miðanum strax í veskið eftir að hún keypti hann og sökum mikilla anna var miðinn steingleymdur þar til framangreind tiltekt fór fram. Miðinn góði sem gaf vinning upp á rétt tæplega 15 milljónir króna var búinn að flækjast á hina ýmsu staði með eigandanum þar til hann skilaði sér til Getspár.

Konan mætti síðan á skrifstofu Getspár í vikunni og var aldeilis himinlifandi með „fundinn“. Þarna sannast að tiltekt getur svo sannarlega borgað sig líkt og fram kemur í tilkynningunni. Jafnframt er bent á að lottómiðar gilda í eitt ár frá útdráttardegi en um að gera að athuga miðana sína sem fyrst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk
Fréttir
Í gær

Grunur um manndráp á Akureyri

Grunur um manndráp á Akureyri