fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Hún er ákærð fyrir að hafa myrt tvíburasystur sína – Samband þeirra virtist fullkomið en ekki var allt sem sýndist

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 2. febrúar 2018 08:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Var það hörmulegt slys eða morð þegar Alexandria Duval ók bíl sínum fram af bjargbrún á Hawaii? Eineggja tvíburasystir hennar lést í slysinu sem kannski var morð framið af yfirlögðu ráði. Þessa dagana standa réttarhöld yfir á Hawaii vegna málsins en Alexandria er ákærð fyrir að hafa ráðið systur sinni bana með því að hafa ekið bifreið út af bjargbrún á Maui á Hawaii í maí 2016.

Alexandria hefur haldið því fram að hún hafi misst stjórn á bílnum og hann hafi farið í gegnum vegrið og fram að bjargbrún og hrapað 60 metra niður eftir hlíðinni. Systir hennar, Anastasia, lést í slysinu en Alexandria slasaðist mikið.

Systurnar sem voru 37 ára þegar slysið átti sér stað höfðu alla tíð verið mikið saman. Þær bjuggu saman, þær fóru saman að versla, þær óku um á eins bílum og unnu saman. Ekki var annað að sjá en samband þeirra væri fullkomið eftir því sem segir í People.

En síðan þennan örlagaríka maídag 2016 hefur eitt og annað komið upp á yfirborðið sem gefur aðra sýn á samband þeirra systra. Vitni hafa sagt að þær hafi stöðugt rifist eins og börn, þær hafi slegist og rifið í hár hvor annarrar þegar upp úr sauð.

Einnig hefur komið fram að hinu vinsæla jógastúdíói sem þær ráku í Flórída, þegar þær bjuggu þar, hafi skyndilega verið lokað eftir að þær lentu í fjárhagsvandræðum. Í kjölfarið fluttu þær til Utah og skildu töluverðar skuldir eftir í Flórída. Í Utah komust þær í kast við lögin, voru teknar ölvaðar við akstur og lentu í slagsmálum á almannafæri. Á endanum fluttu þær til Hawaii.

Federico Bailey, unnusti Anastasia, kom fyrir rétt í vikunni. Hann sagði að skömmu eftir lát Anastasia hafi Alexandria byrjað að klæða sig í fatnað af systur sinni og láta eins og hún væri Anastasia. Hún hefði meðal annars leitað á hann kynferðislega.

Hann sagðist hafa verið í útilegu á Maui með Anastasia þegar Alexandria hafi birst þar óvænt. Systurnar hafi rifist og síðan ekið saman á brott. Skömmu síðar fór bíll þeirra fram af bjargbrúninni.

Önnur vitni hafa komið fyrir dóminn og sagt að þau hafi séð systurnar rífast í bílnum rétt áður en hann fór fram af bjargbrúninni. Réttarhöldunum verður haldið áfram síðar í febrúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Í gær

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work