Enn skelfur jörð við Grímsey en í nótt riðu nokkrir stórir skjálftar yfir við eyjuna og fundust sumir þeirra á Akureyri og Húsavík. Frá því á hádegi í gær til miðnættis mældust margir skjálftar, þar af 10 að stærðinni 3,2 til 3,8.
Frá miðnætti hafa mælst 5 skjálftar yfir 3,3 að stærð, þar af voru tveir sem mældust 4,0. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Fram kemur að sumir skjálftanna hafi fundist á Akureyri og Húsavík.