Fréttablaðið greinir frá því nú í kvöld að maður hafi fundist látinn við Reykjanesbraut, við frárein að Álfabakka. Maðurinn fannst klukkan ellefu í morgun.
Reynt var að koma manninum til bjargar en lífgunartilraunir báru ekki árangur. Maðurinn var rúmlega sjötugur og hafði glímt við hjartveiki.