Róbert Wessman og þeir Árni Harðarson og Magnús Jaroslav Magnússon voru í gær dæmdir af Hæstarétti til að greiða fyrrverandi viðskiptafélaga sínum, Matthíasi Johannessen, 640 milljónir vegna viðskipta í lyfjafyrirtækinu Alvogen. Vextir og dráttarvextir bætast við heildarupphæðina sem er þá 1,2 milljarðar króna. Eru þetta með hæstu bótum sem einstaklingar hafa verið dæmdir til að greiða. Mikið hefur farið fyrir Róberti síðustu ár en hann veit allt um lyfjabransann, innanhússhönnun og eftirrétti. Nú síðast líka um kampavín. Fram að þessum degi virtist hann geta gert og fengið allt sem hann vildi. Nema DV reyndar.