fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Ágúst Ólafur í leyfi af þingi eftir alvarlegt atvik í sumar – „Nálgaðist ég hana tvívegis óumbeðinn og spurði hvort við ættum að kyssast“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 7. desember 2018 20:38

Ágúst Ólafur Ágústsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Kvöld eitt í byrjun sumars hitti ég konu á mínu reki á bar í miðbæ Reykjavíkur. Við könnuðumst lítillega við hvort annað, tókum saman tal og í kjölfarið fórum við saman yfir á vinnustað hennar. Þegar þangað var komið héldum við samræðunum áfram. Því miður hafði ég misskilið illilega á hvaða forsendum við vorum stödd þar og nálgaðist ég hana tvívegis óumbeðinn og spurði hvort við ættum að kyssast. Svar hennar var nei og hún gaf mér skýrt til kynna að það væri ekki í boði með því að banda mér frá sér. Tekið skal fram að það var algerlega mín ranga ályktun að slíkt væri í boði.“

Þetta segir þingmaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson sem hefur ákveðið að fara í launalaust leyfi vegna kynferðislegrar áreitni og þeirrar framkomu sem hann sýndi þessari konu. Greinir Ágúst frá því að hann hafi verið áminntur af trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar og telur rétt að greina frá sinni hlið, segja frá út frá sínum sjónarhóli sem gerðist þetta kvöld en ljóst er að hann beitti konuna kynferðislegri áreitni. Ágúst segir:

„Ég brást við þessari skýru höfnun hennar með því að láta mjög særandi orð falla um hana. Ég er ekki stoltur af þeim orðum eða framkomu minni og vegferð almennt þetta kvöld. Ég varð mér einfaldlega til háborinnar skammar. Hún bað mig því næst að fara, sem ég og gerði.

Nokkru síðar hafði hún svo samband við mig og ræddi við mig upplifun sína af samskiptum okkar þetta kvöld. Hún sagði mér að orð mín og framkoma hefðu sært hana og að þetta hafi valdið henni vanlíðan, meðal annars vegna þeirrar stöðu sem ég gegni. Ég bað hana innilega afsökunar á að hafa látið henni líða svona. Við töluðum síðan aftur saman og áttum síðar sérstakan fund þar sem hún útskýrði fyrir mér hvaða áhrif þetta hafi haft á sig.“

Ágúst heldur áfram:

„Hún ákvað í kjölfarið að stíga það eðlilega skref að tilkynna til faglegrar trúnaðarnefndar flokks míns hvernig ég hefði komið fram. Trúnaðarnefndin er sérstakur farvegur fyrir fólk til að tilkynna í trúnaði áreitni, óviðeigandi framkomu eða annað slíkt af hálfu félaga í Samfylkingunni. Í nefndinni situr fólk með bakgrunn í sálfræði, lögfræði og fleiri greinum. Við fengum bæði að koma fyrir nefndina og lýsa atburðarásinni og þar lýsti ég aftur iðrun minni og vilja til að bæta fyrir framkomu mína.“

Ágúst segir að trúnaðarnefnin hafi þau úrræði að ljúka málum án viðurlaga og geti mælt með ráðgjöf telji hún ástæðu til þess.

„Þá getur nefndin einnig veitt áminningu eða gengið lengra og lagt til að viðkomandi víki úr trúnaðarstörfum,“ segir Ágúst. „Í síðustu viku lá niðurstaða trúnaðarnefndarinnar svo fyrir og var hún sú að veita mér áminningu vegna framkomu minnar og vitaskuld uni ég því. Í því felst að ég þurfi að horfast í augu við að framkoma mín hafi verið ámælisverð og líta í eigin barm.“

Ágúst kveðst ætla að leita sér aðstoðar vegna þess að hafa áreitt konuna.

„Ég tel einnig rétt að ganga lengra en trúnaðarnefndin leggur til og hef því óskað eftir launalausu leyfi frá þingstörfum í tvo mánuði,“ segir Ágúst og bætir við að lokum:

„Ég vil nota tækifærið og ítreka afsökunarbeiðni mína til viðkomandi. Mér þykir afar leitt að hafa sýnt henni þessa framkomu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“