Gunnar Smári Helgason, þaulreyndur hljóðmaður, segist hafa einangrað þann hljóðbút þar sem einn þingmaður hermir eftir sel þegar tal berst að Freyju Haraldsdóttur á alræmdu sumbli á barnum Klaustur. Gunnar Smári segist geta fullyrt að hljóðið komi frá manni en ekki stól.
Hann greinir frá þessu á vef sínum, trölli.is. „Ég renndi hljóðupptöku frá Klausturbarnum í gegnum ProTools upptöku tæki, og meðhöndlaði hljóðið á sama hátt og stundum er gert til að hressa upp á gamlar upptökur. Hljóðið er óklippt og ekkert var gert til að reyna að breyta því á annan hátt en að heyra betur hvað þarna fór fram. Ég tel mig geta fullyrt að umrætt hljóð sem SDG hefur haldið fram að sé úr stól, komi úr manni en ekki stól,“ segir Gunnar Smári.
Í grein sem birtist á vef Kjarnans í gær segir Freyja að Sigmundur Davíð hafi hringt í hana í kjölfar þess að fjölmiðlar greindu frá þeim hluta upptökunnar sem sneri að henni. Hún sagði að Sigmundur hafi útskýrt að selahljóðið hafi komið úr stól.
Upptökuna má heyra hér fyrir neðan en Gunnar Smári lýsir aðferð sinni svo:„Notaði Waves E-Noise plug-in sem hentar oft vel til að hreinsa burt eða minnka aukahljóð í bakgrunni. Beitti lika Waves L2 limiter til að hægt væri að hækka styrkinn á hljóðinu aðeins.“