„Það var pollrólegur og mjög ánægður vinningshafi sem mætti til Getspár ásamt foreldrum sínum með vinningsmiðann frá síðasta laugardegi. Er hann með þeim yngri sem við höfum fengið í heimsókn til okkar en hann er aðeins rétt um tvítugt, háskólanemi sem býr í foreldrahúsum.“
Svona hljómar tilkynning frá Íslenskri getspá um nýjasta milljónamæring Íslands, ungan háskólanema sem vann 41,4 milljónir króna í lottóinu um helgina.
„Ungi háskólaneminn heyrði auglýsingu um stóran Lottópott síðasta laugardag og hugsaði þá með sér: „Best að kaupa miða”. Og þar sem hann átti leið um Hafnarfjörð ákvað hann að koma við í Fjarðarkaupum og klára málið, með von um vinning.“
Á laugardagskvöldið, þegar ungi maðurinn var kominn í háttinn, mundi hann eftir lottóinu og fór hann inn á lotto.is þar sem hann skoðaði vinningstölurnar. Sá hann einhverjar kunnuglegar tölur.
„Miðinn var hins vegar úti í bíl og hann nennti alls ekki að klæða sig og sækja miðann, það gerði hann hins vegar um leið og hann vaknaði daginn eftir og grunurinn reyndist réttur, hann hélt á vinningsmiða sem á var vinningur upp á rúmlega 41,4 milljónir króna.“
Í tilkynningunni segir að maðurinn ætli að gefa sér góðan tíma til að ákveða næstu skref. Hann var þó harðákveðinn í að byrja á því að leyfa bílnum sínum að fara í gegnum alþrif, í tilefni jólanna.
„Starfsfólk Getspár óskar vinningshafanum innilega til hamingju með þennan glæsilega vinning,“ segir að lokum í tilkynningunni.