fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Býður skjólstæðingum sínum sýklalyf: „Einn hafði reynt að svipta sig lífi í gær“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 17. desember 2018 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frú Ragnheiður keyrir um höfuðborgarsvæðið, alla daga vikunnar nema laugardaga, frá klukkan 18 til 22. Þjónustunni hefur verið lýst sem tvíþættri, nálaskiptiþjónustu og heilbrigðisþjónustu, en í raun er þjónustan mun víðtækari.

„Við erum að gefa þeim sem nota vímuefni í æð tækifæri til að taka ábyrgð á vímuefnanotkun sinni. Á síðasta ári förguðum við 2.800 lítrum af notuðum sprautunálum,“ segir Svala Jóhannesdóttir, verkefnastýra Frú Ragnheiðar í samtali við DV.

Verkefnið Frú Ragnheiður miðar þjónustu sína að skjólstæðingunum og þeirra þörfum. Þeim hentar betur að sækja sér þjónustu á kvöldin, svo vaktin er höfð á kvöldin, þeir hafa oft mætt fordómum og upplifað útskúfun úr samfélaginu, en ekki hjá Frú Ragnheiði.

Markmið Frú Ragnheiðar er að ná til jaðarsettra hópa í samfélaginu, þá einkum einstaklinga sem eru heimilislausir og einstaklinga sem nota vímuefni í æð. Í sérinnréttuðum bílnum kennir ýmissa grasa. Þar má meðal annars finna hrein áhöld til vímuefnanotkunar, vatnsbrúsa, mat, hlý föt, tjöld, svefnpoka og búnað til að nota við heilbrigðisþjónustu. Þrír sjálfboðaliðar standa vaktina hverju sinni og jafnframt er læknir á bakvakt þeim innan handar, hjá þeim geta skjólstæðingar meðal annars fengið almenna heilbrigðisþjónustu, sálrænan stuðning og ráðgjöf.

Meðan á vaktinni stendur geta skjólstæðingar hringt og bíllinn kemur til þeirra. Einstaklingar innan jaðarsettra hópa eiga oft erfitt með að sækja sér heilbrigðisþjónustu og annað á hefðbundnum opnunartíma eða treysta sér ekki til að nýta sér þá þjónustu af ótta við að mæta fordómum og skilningsleysi.

Starfsemin utan bílsins

Svala verkefnastýra sinnir skjólstæðingum yfir daginn. Þeir skjólstæðingar hafa kannski beðið um hjálp við að komast í meðferð, aðstoð til að fá áfallahjálp, nálaskiptaþjónustu utan hefðbundnu vaktarinnar, og stundum þurfa þeir bara einhvern sem er tilbúinn að hlusta.

„Í dag til dæmis fór ég með einum í viðtal hjá Von, en hann er að reyna að komast í meðferð hjá SÁÁ. Ég fór og sótti hann, kom með hann hingað [í húsnæði Rauða krossins] og gaf honum að borða fyrir viðtalið því hann var mjög svangur. Ég fór síðan í apótek og leysti út sýklalyf fyrir annan, en við bjóðum skjólstæðingum upp á sýklalyf, en við veitum sýklalyfjameðferð í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar varðandi að greiða fyrir lyfin. Ég fór í dag á tvo staði með nálaskiptaþjónustu, annar var í mjög erfiðu fráhvarfi að hann komst ekki út úr húsi og gat því ekki nýtt sér vaktina hjá Frú Ragnheiðar-bílnum. Næst fór ég með Frú Ragnheiðar-bílinn í þrif hjá Löðri, þeir styrkja okkur með þrif. Í dag var ég líka að leita að tveimur skjólstæðingum okkar, ég sinni sem sagt líka leitarstarfi, einn vantaði lyf vegna lifrarbólgu C og hinn hafði ofskammtað eða reynt að svipta sig lífi í gær.“

Svala hefur því nóg að gera, en hluti af starfi hennar felst í að byggja upp gott meðferðarsamband við skjólstæðingana, sérstaklega þá sem eru hvergi annars staðar í þjónustu. Þeir geta hringt í hana og treyst því að hún hlusti og reyni að aðstoða eftir fremsta megni.

Frú Ragnheiður bjargar lífum

Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar koma úr öllum stéttum samfélagsins, öllum stigum menntunar og á öllum aldri. Þau eiga það sameiginlegt að lífið hefur verið þeim erfitt og eiga þau oft mikla áfallasögu að baki. Eins og flestir einstaklingar, vilja þau mæta skilningi og samkennd. Það fá þau hjá Frú Ragnheiði.

Í Frú Ragnheiði er hægt að fá hreinan búnað til vímuefnanotkunar

Legðu verkefninu lið

Í dag er nóg að gera á vaktinni hjá Frú Ragnheiði og starfsemin hefur aukist að umfangi ár frá ári. Því er mikilvægt að verkefnið hafi nægt fjármagn til að halda sínu góða starfi áfram og geta hjálpað einstaklingum á borð við Jenna, en opinberir styrkir sem verkefnið hefur hlotið nægja ekki og þarf Rauði krossinn að borga með verkefninu. Styrkir námu um 10 milljónum á árinu á meðan starfsemin kemur til með að kosta um 19 milljónir.

Sjö fræknir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, í samstarfi við Frú Laufey-félag um skaðaminnkun, ætla að róa á róðrarvél stanslaust í heila viku til að afla fjár fyrir Frú Ragnheiði. Fénu verður meðal annars varið til tækjakaupa, kaupa á  hjúkrunarvörum og sýklalyfjum. Hægt er leggja söfnuninni lið með því að:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“
Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Fréttir
Í gær

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“