fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Tryggvi verður fluttur nauðugur á hjúkrunarheimili í Reykjavík – Herbergi hans tæmt án hans vitundar

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Laugardaginn 15. desember 2018 14:53

Tryggvi Ingólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo virðist sem undirskriftalisti 12 starfsmanna hjúkrunarheimilisins Kirkjuhvols hafi nægt bæði stjórnendum heimilisins og sveitarstjórn til að vísa Tryggva Ingólfssyni af heimilinu þann 27. mars síðastliðinn. Samkvæmt yfirlýsingu sem sveitarfélagið sendi frá sér vegna málsins kemur fram að sveitarfélagið beri rekstrarlega ábyrgð á Hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli en tekið sérstaklega fram að það hafi engar faglegar forsendur til að grípa inn í einstök mál skjólstæðinga þess, þó svo að þeir beri skýra lagalega ábyrgð á að veita íbúum þjónustu sína.

Í samtali við Ísólf Gylfa Pálmason, fyrrverandi sveitarstjóra Rangárþings eystra gat hann ekki svarað DV hvort eða hvenær Landlæknisembættið hafi í samráði við sveitarfélagið og stjórnendur hjúkrunarheimilisins ákveðið að neita Tryggva um vistun á hjúkrunarheimilinu. Samkvæmt yfirlýsingu sveitarfélagsins var sagt að ekki hefði verið hægt að tryggja öryggi hans og var því neitað að taka við honum. Þarna stemma dagsetningar ekki og virðist Tryggva því hafa verið vísað ólöglega út af hjúkrunarheimilinu án nokkurra faglegra forsendna eða með vitneskju fagaðila. Virðist því sem undirskriftir starfsmannanna hafi verið einu forsendurnar fyrir því að neita Tryggva aftur um vist eftir meira en tíu ára búsetu þar.

Tryggvi Ingólfsson, sem er lamaður fyrir neðan háls, hefur í átta mánuði þurft að dúsa í litlu herbergi á Landspítalanum í Fossvogi. Áður hafði hann dvalið við gott atlæti á dvalar- og hjúkrunarheimilinu á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli í ellefu ár. Í byrjun árs þurfti Tryggvi að fara í aðgerð á Landspítalanum. Á meðan hann var fjarverandi skrifaði starfsfólk heimilisins undir undirskriftalista þess efnis að það myndi ganga út ef Tryggvi sneri aftur á Kirkjuhvol. Hefur fjölskylda Tryggva fengið mismunandi skýringar á þessum aðgerðum starfsfólks, allt frá því að Tryggvi væri erfiður í samskiptum og ylli miklu álagi á starfsfólk, yfir í að ekki væri hægt að tryggja öryggi hans á Kirkjuhvoli. Hjúkrunarheimilið gat þó í 11 ár veitt honum þjónustu án þess að nokkurn tímann hafi verið rætt að öryggi hans væri ógnað með veru hans þar.

Í stað þess að dvelja í rúmlega 500 metra fjarlægð frá eiginkonu sinni þá aðskilja rúmlega 100 kílómetrar þau. Tryggvi dvelur einn og yfirgefinn á lungnadeild Landspítalans í Fossvoginum og getur ekki hitt ástvini sína eins oft og hann langar. Hann segist upplifa sig sem einskis nýtan pappakassa sem sé hent í geymslu. Fjölskyldumeðlimir telja að um gróft mannréttindabrot sé að ræða en engin lausn virðist í sjónmáli. Kostnaðurinn við dvöl Tryggva í Fossvoginum er ærinn eða um 350 þúsund krónur á dag.

Tæmdu herbergi hans án hans samþykkis eða vitundar

Starfsfólk Kirkjuhvols tók sig saman um miðjan október og tæmdi herbergi Tryggva án þess þó að láta hann vita eða fjölskyldu hans. Aldrei á neinum tímapunkti var beðið um leyfi hjá Tryggva eða fjölskylda hans spurð hvort hún vildi nálgast eigur hans. DV reyndi ítrekað að hafa samband við forstöðumann Kirkjuhvols til að fá skýr svör um hvort fyrir hafi legið heimild frá Tryggva til að tæma herbergið hans. Erfitt var að ná í forstöðumann Kirkjuhvols, Sólveigu Unni Eysteinsdóttur, og reyndi DV í rúma viku að ná sambandi við hana. Þegar það tókst var hún spurð hvort Tryggvi hefði veitt heimild þar að lútandi. „Þarf ég þess,“ sagði Sólveig.

Mun verða fluttur nauðugur á hjúkrunarheimili í Reykjavík

Búið er að tilkynna Tryggva að hann verði fluttur af lungnadeild Landspítalans þann 3. janúar næstkomandi á hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði í Reykjavík. Tryggvi segist alls ekki vilja fara þangað því hann vilji vera nær fjölskyldu sinni. Samkvæmt öruggum heimildum DV er velferðarráðuneytið í samningaviðræðum við hjúkrunarheimilið Lund á Selfossi um að þjónusta Tryggva. Þær samningaviðræður virðast hafa siglt í strand vegna þess að upphæðin sem ráðuneytið er tilbúið að borga vegna Tryggva er mun lægri en var greitt með honum á hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás
Fréttir
Í gær

Fór huldu höfði á Íslandi en eftirlýstur í Póllandi – Sagðist ekki geta farið í flugvél vegna höfuðhöggs

Fór huldu höfði á Íslandi en eftirlýstur í Póllandi – Sagðist ekki geta farið í flugvél vegna höfuðhöggs
Fréttir
Í gær

Ritstjóri Austurfréttar ánægður með árshátíðina dýru – „Ekki há upphæð fyrir fyrirtæki með tekjur upp á 52 milljarða króna“

Ritstjóri Austurfréttar ánægður með árshátíðina dýru – „Ekki há upphæð fyrir fyrirtæki með tekjur upp á 52 milljarða króna“