Þorsteinn Hjaltested, bóndi og fjárfestir á Vatnsenda, er látinn, 58 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu aðfaranótt 12. desember.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu. Þorsteinn er sonur Magnúsar Hjaltested, bónda á Vatnsenda og Kristrúnar Ólafar Jónsdóttur. Hann lærði til matreiðslumeistara og starfaði sem yfirmatreiðslumaður í verslunum Víðis eftir útskrift. Hann kom að veitingarekstri í Sundakaffi og í golfskála Golfklúbbs Reykjavíkur og var einnig hluthafi í ýmsum fyrirtækjum.
Hann erfði landið Vatnsenda í Kópavogi af föður sínum og rak þar sauðfjár og fossabú.
Hann gekk í hjónaband með Kaire Hjaltested en þau skildu. Þorsteinn lætur eftir sig tvo syni, þá Magnús Pétur og Björn Arnar.