Skemmtikrafturinn Sóli Hólm skammar gárunga á Twitter sem gerðu grín af slysi bróður hans. Vísir greindi frá því í vikunni að Sigurður Sólmundarson, sem er stundum kallaður Costco-gaurinn, hafi lent í bílslysi en litlu mátti muna að illa færi. Þessi frétt varð tilefni til þess að sumir gerðu grín á Twitter af fréttinni.
Sigurður er kallaður Costco-gaurinn þar sem hann birti myndbönd stuttu eftir opnun búðarinnar þar sem hann fjallaði um vörur Costco á gamansaman máta. Hann greindi frá slysinu á Facebook í gær og skrifaði: „Ég lenti í bílslysi síðdegis í gær. Fékk aðsvif, fór yfir á rangan vegarhelming og lenti framan á smábíl stúlku sem betur fer slapp vel. Ég er sem sagt brotinn á báðum fótum, úlnliðsbrotinn og krambúleraður. Takk fyrir allar kveðjurnar, elsku vinir.“
Nokkrir gerðu grín af þessu, þar á meðal Sveinbjörn Pálsson. Hann skrifaði: „Við á Twitternum óskum öll Herði Kristbirni Ágústssyni í Macland skjótan bata.“ Þar vísar hann til þess að Hörður stýrir hópnum Costco – Leiðindi á Facebook, en það helsti vettvangur Costco-gríns á Ísland.
Við á Twitternum óskum öll Herði Kristbirni Ágústssyni í Macland skjótan bata. pic.twitter.com/7wHkeZyOlC
— Sveinbjörn (@sveinbjornp) December 13, 2018
Sóli Hólm gagnrýnir þetta og þykir þetta grín óviðeigandi þar sem um alvarlegt slys var að ræða. Sveinbjörn svarar og óskar bróður hans skjótum bata: „Leitt að heyra að þetta sé bróðir þinn, vona að hann fái skjótan bata.“
Komið endilega með fleiri sökkuð gríntweet um þetta dæmi meðan við í fjölskyldunni hans, þar à meðal börnin hans þrjú, þökkum fyrir að hann skuli vera á lífi og ekki lamaður eftir þetta hryllilega slys.
— Sóli Hólm (@SoliHolm) December 14, 2018