fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Bolli segir að nú sé nóg komið: „Þessi þjóð hlýtur að eiga betra skilið“ – Þetta situr hún uppi með

Ritstjórn DV
Föstudaginn 14. desember 2018 09:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stjórnvöld reyna ekki að leita sátta í sundruðu samfélagi og láta sem sundrungin komi þeim ekki við,“ segir Bolli Héðinsson hagfræðingur í grein í Fréttablaðinu í dag.

Í grein sinni, sem ber yfirskriftina „Déjá vu“ verðbólgukynslóðarinnar, fjallar hann á gagnrýninn hátt um það sem aflaga hefur farið, að hans mati, í íslensku þjóðfélaginu að undanförnu. Beinir hann spjótum sínum einkum að efnahagsmálum í pistli sínum.

„Síðustu vikur hafa kjör almennings þegar rýrnað sem nemur gengislækkun („gamla gengið“) krónunnar, kjararýrnun sem þegar er orðin langt umfram það sem var þegar verkalýðshreyfingin byrjaði að móta launakröfur sínar,“ segir Bolli sem telur svo upp nokkur atriði sem þjóðin situr uppi með.

Fyrst nefnir hann stjórnvöld sem hann segir kjósa að sitja með hendur í skauti í gjaldmiðilsmálum og bíða eftir töfralausnum á meðan krónan fellur og fellur. Þá sitji þjóðin uppi með stjórnvöld „sem láta úrskurð kjararáðs þeim sjálfum til handa standa óbreyttan þrátt fyrir að hann hafi verið langt umfram það sem aðrir hópar hafa fengið.“

Loks segir hann þjóðina sitja uppi með stjórnvöld sem neita að lækka laun ríkisforstjóra þrátt fyrir að launahækkanir til þeirra hafi verið í trássi við eindregna ósk stjórnvalda um hóflegar hækkanir.

Bolli beinir ekki bara sjónum sínum að stjórnvöldum því Samtök atvinnulífsins og verkalýðsfélögin fá sinn skerf af gagnrýni. Hann segir þjóðina sitja uppi með Samtök atvinnulífsins…

„…Sem neita að nota samtakamátt sinn til að fá fulltrúa sína í stjórnum lífeyrissjóða til að lækka hæstu laun í fyrirtækjum sem þeir eiga?…

…sem velja sér launaþróun út úr norræna velferðarmódelinu en horfa ekki til langtum betri almannaþjónustu sem veitt er á Norðurlöndum. Þar nægir að nefna, húsnæðismál, skóla- og heilbrigðiskerfi auk almenningssamgangna sem allt stuðlar að því að lækka framfærslukostnað venjulegs fólks auk tryggðrar afkomu örorku- og ellilífeyrisþega.“

Loks segir hann þjóðina sitja uppi með verkalýðsfélög sem „ætla að leyfa útgerðum að ráðskast áfram með fiskveiðiauðlindina óáreittum í stað þess að krefjast eðlilegs afgjalds sem gæti runnið til brýnna samfélagsverkefna á borð við húsnæðismál eða brothættar byggðir.“

Þá sitji þjóðin uppi með verkalýðsfélög sem treysta sér ekki til að krefjast bindingar launa við þann gjaldmiðil sem verð á innfluttum vörum sveiflast í takt við.

„Þannig leyfa þau atvinnurekendum að halda áfram að velta kostnaði yfir á launþega í landinu,“ segir Bolli sem endar grein sína á þessum orðum: „Þessi þjóð hlýtur að eiga betra skilið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga