Víðir Sigurðsson, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, segir í skoðanapistli á íþróttasíðum blaðsins í dag að honum hafi liðið illa þegar hann horfði eitt sinn á bardaga Gunnars Nelson. Síðan þá hafi látið duga að lesa textalýsingar af bardögum hans. Hann spyr sig hvert við séum komin þegar það þurfi að vara viðkvæma við þegar fjallað er um ákveðnar í þróttir í fréttum.
Það er fastur liður að sumt fólk gagnrýni blandaðar bardagalistir þegar Gunnar stígur inn í búrið og virðist Víðir taka undir það sjónarmið. „Þegar íþróttafréttamenn í sjónvarpi hefja lestur fréttar svona: „Við vörum ykkur við myndunum sem fylgja þessari frétt,“ hvert erum við þá eiginlega komin? Þannig hófust fréttirnar hjá bæði Stöð 2 og RÚV síðasta sunnudagskvöld, þegar sagt var frá sigri Gunnars Nelsons á Brasilíumanninum Alex Oliveira í UFCbardaganum í Toronto,“ segir Víðir í Morgunblaðinu.
Hann segir að sér hafi liðið illa síðast þegar hann sá bardaga Gunnars. „Umræddar viðvaranir áttu fullan rétt á sér því „búrið“ var blóði drifið og samlíking við vígvöll var engan veginn út í hött. Einhvern tíma reyndi ég að horfa á bardaga hjá Gunnari en ég stóð upp eftir örstutta stund. Mér leið hreinlega illa að sjá barsmíðarnar og höfuðhöggin. Eftir það hef ég látið mér nægja að heyra eða lesa hvernig fór,“ segir Víðir.
Hann leggur áherslu á að hættan af höfuðhöggum sé talsvert meiri í MMA en í öðrum íþróttum. „Á sama tíma og bardagamenn í UFC og hnefaleikakappar láta höggin dynja á höfði andstæðinganna hefur orðið vakning hvað varðar hættuna af höfuðhöggum í öðrum íþróttum þar sem leitað er leiða til að forðast óafturkræfan skaða sem heilinn getur orðið fyrir, sérstaklega ef um endurtekin högg er að ræða. Unnendur þessara íþrótta beita gjarnan þeim rökum að höfuðáverkar eigi sér stað í mörgum öðrum greinum. Það er ekki sambærilegt. Þar er um tilfallandi slys að ræða á meðan bardagamennirnir beina höggum sínum markvisst að höfði andstæðingsins,“ segir Víðir.
Að lokum óskar Víðir Gunnari velfarnaðar, þrátt fyrir fyrri orð sín. „Ég ber virðingu fyrir Gunnari Nelson sem íþróttamanni og persónu og vona fyrir hans hönd að hann nái sem lengst og geti látið drauma sína rætast. En ég óska honum fyrst og fremst gæfu og gengis á þann hátt að hann komist óskaddaður frá ferlinum,“ segir Víðir.