Það var kátur fjölskyldufaðir sem heimsótti Íslenska getspá með vinningsmiðann í EuroJackpot frá síðasta föstudegi. Maðurinn var að versla inn jólagjafir í Kringlunni og ákvað að skella sér á miða í Happahúsinu. Hann sér svo sannarlega ekki eftir því.
Í fréttatilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að miði mannsins hafi verið 10 raða sjálfval með Jóker. Miðinn skilaði honum 2. vinningi upp á rúmlega 131 milljón króna og er þetta lang stærsti vinningur í EuroJackpot sem komið hefur til landsins frá upphafi.
Maðurinn var kominn aftur vestur þegar hann áttaði sig á því að hann væri orðinn milljónamæringur og þá var ekkert annað að gera en að drífa sig aftur í höfuðborgina. Enda miðinn allt of verðmætur til að dinglast í töskunni. Vinningurinn kemur sér einstaklega vel hjá þeim hjónum sem nýlega eignuðust sitt annað barn.
Starfsfólk Íslenskrar getspár óskar hjónunum innilega til hamingju með þennan stór glæsilega vinning.