Snærós Sindradóttir, fjölmiðlakona og verkefnastjóri á RÚV, segist fá klígju við að horfa á MMA-bardagaíþróttina. Hún birtir mynd af Gunnari Nelson á Twitter og segir myndmálið sem þar birtist vera veikt. Það má segja að það sé orðinn fastur liður eins og venjulega að ræða um mögulega hættu á að stunda blandaðar bardagalistir eftir að Gunnar Nelson hefur stígið inn í búrið eða hvort MMA sé íþrótt. Færsla Snærósar hefur vakið nokkra athygli og fjölmargir eru henni sammála, sé tekið mið af lækum og deilingum.
Gunnar sigraði Brasilíumanninn Alex Oliveira aðfaranótt sunnudags en bardaginn var óvenjublóðugur. Gunnar lagði Oliveira í annarri lotu en hann lét högg dynja á Oliveira áður en hann tók hann hálstaki. Eftir að Gunnar gaf Brasilíumanninunum þungt olnbogaskot í ennið gafst Oliveira upp og fagnaði Gunnar með því að öskra, líkt og sjá má hér fyrir neðan. Eftir bardagann þurfti að sauma 29 spor í höfuð Oliveira.
He roars again!
Welcome back, @GunniNelson! #UFC231 pic.twitter.com/APn2XMPQWt
— UFC (@ufc) December 9, 2018
Snærós segir: „Ég er búin að þróa með mér óþol fyrir þessu sporti. Finnst allt myndmálið svo veikt. Blóðugur maður á nærbuxunum fagnar því að hafa slasað annan mann. Fæ klígju.“
Líkt og tekið er fram hér að ofan hefur íþróttin verið harðlega gagnrýnd hér á landi. Frétt DV frá árinu 2015 vakti mikla athygli þegar greint var frá því að tvö tilfelli hefðu komið upp í Salaskóla þar sem drengir, tíu til ellefu ára slógu hvorn annan hnefahöggum. Skólastjóri Salaskóla sagði þá í samtali við DV að hann taldi að mætti rekja slagsmálin til hrifningu þeirra á Gunnari Nelson. Sagði Hafsteinn Karlsson skólastjóri Salaskóla að skelfilegt væri að svona viðbjóðsleg íþrótt væri hafin upp til skýjanna. Þá sagði hann að Gunnar Nelson væri hættuleg fyrirmynd. Hafsteinn sagði:
„Þetta er hreinn viðbjóður og því miður er fullt af litlum drengjum sem horfa á þetta á vefnum án vitundar foreldra sinna. Þarna sjá þeir Gunnar Nelson sem hefur verið hafinn upp til skýjanna hér á landi fyrir þetta ofbeldi.“
Gunnar Nelson svaraði þessu síðar og sagði:
Mér finnst þetta bara vera barnalegt. Það er barnalegt að reyna að kenna einhverjum eins og mér, sem er að stunda mína íþrótt, um að einhverjir tveir strákar hafi verið að slást á skólalóð. Slagsmál hafa viðgengist helvíti lengi og langt fyrir mína tíð,“ sagði Gunnar Nelson og bætti við:
„Ég hef oft sagt það áður að það er kannski ekki fyrir alla að horfa á þetta sport. Foreldrar eiga að dæma um það eða stjórna því hvort börnin sín eigi að horfa á þetta ekki og hvort þau hafi þroska til að skilja hvað er að gerast. Að ætla að kenna Michael Schumacher um að einhver hafi keyrt of hratt niður í bæ er eins asnalegt og það hljómar.“
Kristófer Alex Guðmundsson, forseti ungliðahreyfingar Viðreisnar, skrifar athugasemd á vegg Snærósar sem fleiri virðast sammála, í það minnsta fær sú færsla fleiri læk. „Tveir sjálfráða einstaklingar þjálfa sig líkamlega og andlega í mörg ár, keppa í íþrótt eftir fyrirfram ákveðnum reglum með dómurum og læknum viðstöddum. Menn slasast þar eins og í öllum öðrum íþróttum. Brók hylur eins og sundskýla. Hann fagnar ekki að slasa, hann fagnar árangri,“ segir Kristófer.
Snærós stendur þó á sínu og segir að þrátt fyrir þessa vinnu þá sé umgjörðin sú sama: blóð og búr. „Veit allt um vinnuna sem liggur að baki og að allskonar reglum er fylgt. Breytir því ekki að mér þykir þetta bara frekar mikill sóðaskapur og barbarismi og öll umgjörðin ýta undir það: búrið, öskrin, blóðið o.s.frv,“ skrifar Snærós.
Ég er búin að þróa með mér óþol fyrir þessu sporti. Finnst allt myndmálið svo veikt. Blóðugur maður á nærbuxunum fagnar því að hafa slasað annan mann. Fæ klígju. pic.twitter.com/uwchk92Cno
— Snærós Sindradóttir (@Sindradottir) December 9, 2018