Klaustursmálið hefur tröllriðið umræðunni hér á landi undanfarna viku og virðist sem að mikill meirihluti Íslendinga telji að þeir þingmenn sem tóku þátt í umræðunum á barnum ættu að segja af sér. Um 91% aðspurða sögðust vilja að Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins segi af sér samkvæmt könnun Maskínu.
Í þætti vikunnar er rætt við Brynjar Níelsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, um Klausturmálið og þær pólitísku afleiðingar sem verða mögulega vegna málsins. Brynjar segist að sjálfur að hann hafi mun meiri áhyggjur af öðrum samskiptum þingmanna. „ Til að mynda þegar menn koma hér og segja sem þingmaður og opinberlega að annar þingmaður sé þjófur, eða fjármálaráðherra er bara skattsvikari. Ég vil miklu frekar vera kallaður illum nöfnum í einkasamtali á Klaustur bar heldur en að vera kallaður þjófur, eða kynferðisafbrotamaður eins og ég var kallaður einu sinni af þingmanni þegar ég spurði Steinunni Þóru hvort ég mætti kyssa hana.“
Hér að neðan má sjá viðtalið við Brynjar í heild.
Stóru málin – Brynjar Níelsson – 06.12.18 from DV Sjónvarp on Vimeo.