fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Freyja grét í gær: Segir aðeins eitt í stöðunni fyrir þingmennina

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. nóvember 2018 09:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mín fyrstu viðbrögð við hatursorðræðu þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins í morgun voru að verja hvorki krafti né orðum í hana og halda áfram með vinnudaginn minn. En ég hélt auðvitað ekkert áfram með daginn minn að neinu ráði – þetta hefur tekið sinn toll líkt og allt ofbeldi gerir.“

Þetta segir Freyja Haraldsdóttir í færslu sem hún skrifaði á Facebook-síðu sína seint í gærkvöldi. Eins og DV greindi frá í gær gerðu þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins grín að Freyju þegar þeir sátu að sumbli á barnum Klaustur við Kirkjutorg. Á upptöku sem DV hefur undir höndum mátti heyra einn þingmann herma eftir sel þegar talið barst að Freyju. Upptakan er nokkuð óskýr og því ekki fyllilega ljóst hver þeirra hermdi eftir sel.

Birtingarmynd fyrirlitningar

Viðbrögðin við þessu voru hörð í gær en þegar DV bar málið undir Freyju sagðist hún ekki vilja fara niður á þeirra plan. Hún skrifaði svo fyrrgreinda yfirlýsingu seint í gærkvöldi þar sem hún lýsir skoðun sinni á málinu. 

„Eftir að hafa hugsað mikið um þetta, rætt við kærleiksríkt samstarfsfólk, tekið við slatta af ást í gegnum samfélagsmiðla, grátið töluvert, verið kaffærð í faðmlögum frá vinum og fjölskyldu og fylgst með umræðunni eins og hjartað mitt og taugakerfi þolir er eitt og annað sem ég ætla að segja,“ segir Freyja.

„Aðför að fatlaða líkama mínum sem dýrslegum er ekki bara það ,,að gera grín að fötluðum“. Það er birtingarmynd kvenfyrirlitningar og fötlunarfyrirlitningar. Um er að ræða fyrirlitningu sem á sér djúpar sögulegar rætur og endurspeglar ævagömul viðhorf til fatlaðs fólks sem dýra – óæðri manneskjum. Það í samhengi við niðrandi umræðu um útlit og kynþokka kvenna er kvenfjandsamlegt. Ég er ekki bara fötluð. Ég er kona. Ég get ekki tekið mig í sundur og verið stundum fötluð og stundum kona. Ég er alltaf (stolt) fötluð kona,“ segir hún.

Hættulegt þegar fólk í valdastöðum viðhefur hatursorðræðu

Freyja bætir svo að við að þó að hatrið beinist að persónum – sem er grafalvarlegt – sé alvara málsins sú að um kerfisbundið hatur er að ræða sem beinist harðast að konum, hinsegin fólki og fötluðum og karlmönnum sem ekki passa inn í ríkjandi hugmyndir um skaðlega karlmennsku, eins og Freyja orðar það. „Það er hvorki tilviljun né einsdæmi að akkúrat þessir hópar séu viðfang orðaníðs fólks með mikil forréttindi. Það er alltumlykjandi – alltaf.“

Freyja bendir á að gerendur í þessu tilviki séu valdhafar, og alveg óháð því hvar þeir eru í valdastiganum sé ofbeldi af þeirra hálfu alvarlegt. „Það er hinsvegar sérstaklega hættulegt þegar fólk í valdastöðum viðhefur hatursorðræðu. Í fyrsta lagi vegna þess að það setur fordæmi og hefur vald til þess að normalisera orðræðu og ofbeldismenningu. Ef Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, má tala svona, þá hljóta allir að mega það. Í öðru lagi vegna þess að hatursorðræða afhjúpar viðhorf valdhafa sem við höfum kosið og treyst til þess að reka samfélagið okkar og taka mikilvægar ákvarðanir um hagi okkar. Ef þingmenn sjá fatlað fólk sem dýr en ekki manneskjur er ekki furða að það taki ákvarðanir um líf fatlaðs fólks byggt á einhverju allt öðru en mannréttindaskuldbindingum. Í þriðja lagi vegna þess að rannsóknir og reynslan sýnir okkur að hatursorðræða valdhafa hefur bein áhrif á tíðni hatursglæpa.“

Rotin afsökunarbeiðni

Freyja skrifar að lokum um fyrirgefningu og afsökunarbeiðnir. Bendir hún á að það teljist almenn kurteisi og mannvirðing að biðjast afsökunar þegar okkur verður á.

„Það er hinsvegar mjög rotin afsökunarbeiðni og ekki afsökunarbeiðni í raun að afsaka sig með áfengisneyslu og því að eiga vini sem tilheyra minnihlutahópum (sbr. Gunnar Bragi í Kastljósi). Það er líka eitt að verða á og annað að láta hatur gagnvart konum og jaðarsettum hópum vella út úr sér í marga klukkutíma á opinberum vettvangi. Þegar fólk gerist uppvíst um slíkt er ekki forsvaranlegt að henda í eina yfirlýsingu og lofa að drekka færri bjóra næst og halda að þar með verði allt aftur fallegt og gott. Eina leiðin til þess að biðjast afsökunar af trúverðugleika og auðmýkt er að gangast við gjörðum sínum og taka ábyrgð með því að segja af sér,“ segir hún.

Freyja endar svo pistilinn á þeim orðum að hún hafi í gær ekki getað hætt að hugsa um öll fötluðu börnin og ungmennin, einkum stúlkur í óhefðbundnum líkömum, sem hafi heyrt glefsur um þetta.

„Þetta hefur vissulega verið sárt fyrir mig og annað fullorðið fatlað fólk en sárast er þetta fyrir þau. Hvernig í veröldinni eiga þau að þróa með sér jákvæða líkams- og kynímynd, upplifa sig eiga framtíð og búa við öryggi í samfélagi þar sem fyrrverandi forsætisráðherra líkir fyrrverandi fatlaðri samstarfskonu sinni við dýr – ofan á allt annað misrétti sem þau verða fyrir vegna fólks í valdastöðum sem sér þau ekki sem mennsk,“ segir Freyja sem endar greinina á þessum orðum:

„Fyrir þau bregst ég við þessu hatri í dag. Við þau vil ég segja: Allir líkamar eiga rétt á sér. Allir líkamar eru verðmætir og verðugir. Allir líkamar mega og eiga að taka sér pláss. Allir líkamar eiga rétt á að búa við friðhelgi frá hverskyns ofbeldi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“
Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“