fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Tveir grunaðir þjófar handteknir

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 21. nóvember 2018 06:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á sjötta tímanum í gær var tilkynnt um þjófnað í miðborginni. Þar var stolið síma, greiðslukorti, lyfjum og fleira frá konu sem var stödd á Borgarbókasafninu. Lögreglumenn höfðu uppi á þjófinum og fékk konan eigur sínar aftur.

Á sjöunda tímanum var tilkynnt um innbrot í bifreið í miðborginni. Úr henni var stolið fartölvu og fleiru. Maður var handtekinn grunaður um innbrotið og þjófnaðinn og var hann vistaður í fangageymslu. Á honum fundust ætluð fíkniefni.

Tveir ökumenn voru handteknir síðdegis í gær grunaðir um ölvun við akstur.

Þrír ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra er einnig grunaður um vörslu fíkniefna.

Tveir réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir í akstri í gærkvöldi. Annar reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi en hinn reyndist vera sviptur ökuréttindum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi