Lítið hefur farið fyrir skemmtikraftinum Birni Braga Arnarssyni frá því að myndband fór af stað á samfélagsmiðlum sem sýndi hann káfa á stúlku undir lögaldri. Málið var gífurlega umtalað um síðustu mánaðarmót en eftir að stúlkan baðst undan frekari umfjöllun hefur lítið verið talað um það opinberlega.
Nú stefnir hins vegar í það að Björn Bragi gefi út eina vinsælustu bók jólavertíðarinnar, ævisögu Arons Einars Gunnarssonar, fyrirliða íslenska landsliðins í fótbolta. Bókin kom í búðir á dögunum og er ekki harla ólíklegt að hún rati í marga jólapakka. Bókin er gefin út af félagi Björns Braga, Fullt tungl, sem er skráð til heimilis hjá foreldrum Björns. Í fyrra gaf Björn Bragi út bók Sólrúnar Diego, Heima, en sú bók seldist afspyrnu vel.
Sjá einnig: Það sem þú vissir ekki um Björn Braga: Umdeildasti maður landsins þessa vikuna
Líkt og fyrr segir vakti málið um síðustu mánaðarmót mikla athygli. Björn Bragi viðurkenndi að hafa áreitt 17 ára stúlku kynferðislega á Akureyri. Hann steig til hliðar sem spyrill Gettu betur og var afbókaður á skemmtanir. Stúlkan sjálf sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem hún kvaðst hafa fyrirgefið honum. Björn Bragi hefur verið einn vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar síðustu ár. Bæði sem þáttastjórnandi sem og sem meðlimur í Mið-Ísland hópnum.
433 fjallaði fyrr í dag um hluta ævisögu Arons Einars en hann ræðir meðal annars opinskátt um drykkju sína á yngri árum. „Þegar ég var upp á mitt virkasta var þetta orðið þannig að ég fór á djammið með strákunum eftir leik á laugardegi og svo fór maður aftur út á sunnudeginum og fékk sér 4-5 bjóra og mætti svo á æfingu á mánudegi. Þetta var svo endurtekið helgina eftir – og þá næstu,“ segir Aron í bókinni.