fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Beiðnabók stolið frá Reykjavíkurborg og 4 milljónum eytt: „Það er flott að geta verið gáfaður eftir á“

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Laugardaginn 10. nóvember 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óprúttnir einstaklingar stálu beiðnabók frá Reykjavíkurborg og tóku út vörur fyrir rúmar fjórar milljónir í reikning. Svo virðist sem um sé að ræða þaulskipulagðan þjófnað þar sem þjófarnir, tvær konur og tveir karlmenn vissu augljóslega hvernig beiðnakerfi borgarinnar virkar.

Farið var tvisvar í verslun Nova og keyptir farsímar fyrir um eina milljón króna, raftæki fyrir um hálfa milljón króna í verslun Elko og svo loks var keyptur glænýr plastbátur og kerra með fyrir um 2,2 milljónir króna. Átti fyrsta atvikið sér stað þann 27. júlí og það síðasta 12. október síðastliðinn.

Þegar plastbáturinn var keyptur var allt fagmannlega gert af þjófunum og grunaði starfsfólk fyrirtækisins ekki neitt um að hér væri ekki starfsmaður Reykjavíkurborgar á ferð. Beðið var um tilboð ásamt því að þess var óskað að gerðar yrðu sérstakar breytingar á bátnum, meðal annars að setja stærri eldsneytistank í hann.

Í samtali við DV sagði Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, að málið væri komið inn á borð hjá lögreglunni og væri þar í rannsókn. Aðspurður af hverju borgin hefði ekki sent frá sér yfirlýsingu um leið og tilkynnt var um málið til lögreglu, svo birgjar gætu vitað af mögulegu svindli sem væri í gangi með beiðnir frá Reykjavíkurborg svaraði hann: „Það er góð spurning, það er flott að geta verið gáfaður eftir á.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk