Ingólfur Sigurðsson knattspyrnumaður hefur getið sér gott orð fyrir að varpa ljósi á geðvandamál ungra manna. Sjálfur glímir hann við alvarlega kvíðaröskun um árabil og hefur hann talað opinskátt um það.
Ingólfur deilir á Twitter pistli Hafdísar Bjargar Kristjánsdóttur en sá pistill hefur vakið geysimikla athygli. Hafdís velti fyrir sér hvort það sé einhver tenging á milli femínisma og sjálfsvíga ungra karla. Sitt sýnist hverjum um þann pistil en sumir hafa fagnað honum meðan aðrir fordæma hann.
Sjá einnig: Hafdís Björg tengir femínisma við sjálfsvíg: „Á mánudagskvöldinu voru FJÖGUR sjálfsvíg sem áttu sér stað“
„Við búum í samfélagi þar sem ungir karlar drepa sig, þar sem lítið er gert úr orðum þeirra vegna kyns, þar sem einhliða frásagnir kvenna í fjölmiðlum stúta þeim, þar sem misheppnað daður getur orðið að kynferðislegu áreiti þar sem þeir þora ekki að berjast fyrir sjálfa sig, þar sem þeir líða fyrir karllæga menningu og kvenfyrirlitningu fyrir þeirra tíma. Ólæsir, ómenntaðir, láglaunaðir, fangelsaðir, gerendur, geðsjúkir, hræddir. Það eru strákarnir okkar í dag,“ segir Ingólfur.
Hann segir að samfélagið verði hlúa að ungum mönnum. „Og þeir munu halda áfram að drepa sig, stundum fjórir á dag, stundum einn á viku, ef samfélagið býður þá ekki velkomna, ef samfélagið hlúir ekki að þeim. Það þarf að tala við strákana okkar, en ekki tala niður til þeirra,“ segir Ingólfur.
Lesið þetta. Við búum í samfélagi þar sem ungir karlar drepa sig, þar sem lítið er gert úr orðum þeirra vegna kyns, þar sem einhliða frásagnir kvenna í fjölmiðlum stúta þeim, þar sem misheppnað daður getur orðið að kynferðislegu áreiti …https://t.co/DXaaoRjzhA
— Ingólfur Sigurðsson (@ingolfursig) November 8, 2018