Ingimar Skúli Sævarsson, eigandi og stjórnandi starfsmannaleigunnar Manngildis, var handtekinn í morgun ásamt níu erlendum karlmönnum. Samkvæmt RÚV komu erlendu mennirnir til landsins á fölskum skilríkjum, sem sýndu þá frá Litháen, svo þær gætu fengið kennitölu og þar með unnið hér á landi.
Tryggvi Agnarsson, lögmaður Ingimars, fullyrðir í samtali við RÚV að Ingimar Skúli hafi ekki vitað að erlendu mennirnir hafi komið hingað á fölsuðum skilríkjum. „Fólk svíkur sig inn á félagið til að fá vinnu. Menn hjá fyrirtækinu hafa á engan hátt átt þátt í því að vinna með fölsuð skilríki,“ hefur RÚV eftir Tryggva. „Hann hafnar því að hafa haft nokkra minnstu vitneskju um að þessi skilríki væru ekki í lagi og bendir á að hann hafi enga hagsmuni af því að taka þátt í neinu slíku og mundi ekki gera það,“ segir Tryggi.
Ingimar Skúli Sævarsson var áður eigandi og stjórnandi Verkleigunnar en Kveikur fjallaði meðal annars um þá starfsmannaleigu í eftirminnilegum þætti í síðustu viku. DV fjallaði ítarlega um Ingimar og félag hans í fyrra. Meðal annars var deilt um hvort starfsfólk hafi verið svipt frelsi sínu daginn sem yfirmaðurinn var rekinn og hvort skipulögð glæpastarfsemi hafi verið stunduð innan félagsins. Málið er í rannsókn, bæði hjá lögreglunni og lögmanni starfsmannaleigunnar.
Skrifstofufólk Verkleigurnar ræddi við DV á sínum tíma um málið. Sagði Þóra Björk Ottesen, markaðsstjóri: „Meðan við vorum að tala saman kom sá sem við höfum kallað vöðvatröllið og stóð fyrir skrifstofuhurðinni, frekar ógnandi með krosslagðar hendur, eins og við værum ekkert að fara þarna út. Það fór ekkert leynt.“
Unnur Sigurðardóttir sem starfaði á skrifstofunni sagðist hafa verið mjög hrædd og grátið fyrir framan mennina. „Ég hringdi í manninn minn í hræðslukasti og spurði hann hvort hann gæti sótt barnið. Hann vissi ekkert hvað var í gangi og ég sagði að ég yrði að útskýra það fyrir honum seinna. Ég þorði ekki að segja honum hvað væri að gerast í símann.“
Tryggvi var á sínum tíma boðaður til skýrslutöku hjá lögreglunni varðandi þetta mál. Í samtali við DV sagði hann: „Því er algjörlega hafnað að frelsissvipting hafi átt sér stað þarna. Það var enginn beittur neinni nauðung eða neinu slíku.“