Gul viðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og á Miðhálendi. Viðvörunin gildir til kl. 12 á Norðurlandi eystra og á Miðhálendi en til 18 í dag á Austurlandi og á Suðausturlandi.
Samkvæmt Veðurstofunni er nú 980 mb lægð yfir Húnaflóa. Búast má við rigningu og skúrum í dag og snjó á fjallvegum fyrur austan og á Norðvesturlandi. Veðrið mun síðan skána eftir því sem líður á daginn.