Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður Morgunblaðsins og fyrrverandi formaður VR, gagnrýnir harðlega þátttöku íslenskra þingmanna á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins. Þar eru nú Ágúst Ólafur Ágústsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Ágúst og Áslaug hörmuðu á samfélagsmiðlum í gær að þingið hafi hafnað tillögu um að „þingið myndi „fá að ræða“ stöðu og réttindi hinsegin fólks á næsta þingi,“ líkt og Ágúst Ólafur komst að orði.
„Ég, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Sigmundur Davíð sitjum nú 139. þing Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) í Genf. Þetta samband hefur gert margt gott og gagnlegt í sínum störfum frá 1889. Í dag var hins vegar ekki einn af þeim dögum. Meirihluti þingsins, aðallega lönd frá svokölluðum þriðja heimi, felldu tillögu um að þingið myndi “fá að ræða” stöðu og réttindi hinsegin fólks á næsta þingi. Áslaug Arna kaus fyrir okkur í íslensku sendinefndina um að sjálfsögðu ætti að taka þá umræðu. En við töpuðum en baráttan heldur áfram og þarf að gera það,“ skrifar Ágúst Ólafur á Facebook.
Það er sorglegt að sjá hitann og ákefð landanna að berjast gegn þessari tillögu. Tillögu sem felur aðeins sér umræðu um málefnið. Við eigum enn langt í land ❤️?????
Ísland kaus auðvitað með ásamt mörgum vestrænum ríkjum en alls ekki öllum því miður.— Áslaug Arna (@aslaugarna) October 17, 2018
Stefáni Einari var þó misboðið að þingmenn væru að taka þátt á þinginu. „Og hverju á þessi umræða á þessum vettvangi að skila? Skilar þetta fundabrölt einhverju öðru en kostnaði fyrir okkur skattgreiðendur? Eða eru dæmi um að þessi alþjóðahreyfing hafi einhvern tíma komið einhverju til leiðar?,“ skrifaði Stefán Einar í athugasemd við færslu Ágústs.
Ágúst svaraði í kaldhæðni að auðvitað væri alþjóðasamstarf óþarfi.
„Eiga menn að vera í alþjóðasamstarfi alþjóðasamstarfsins vegna? Er ekki nóg að vera með Sameinuðu þjóðirnar, ESB, EES, NATO og hvað þetta allt nú heitir svo ekki sé verið að búa til einhvern saumaklúbb fyrir þingmenn hvaðanæva að sem ekkert eiga sameiginlegt annað en það að þiggja dagpeninga og geta skrafað um mál sem ákvarðanir verða teknar um á einhverjum allt öðrum stöðum?,“ skrifaði Stefán Einar.
Ágúst Ólafur sagði þá: „Stefán Einar Stefánsson, þér er stundum ekki viðbjargandi“. Stefáni Einari blöskraði þetta svar. „Þetta er viðeigandi frá þingmanni á Alþingi Íslendinga. Af hverju getur þú ekki bara svarað svo einfaldri spurningu sem þessari: hverju hafa þessi algeimssamtök alheimsþingmanna skilað okkur sem þurfum að standa straum af herlegheitunum?,“ skrifaði Stefán Einar og bætti svo við: „Það er auðvitað alveg fráleit krafa að alþingismenn svari fólki þegar spurt er út í það hvað skattpeningar fara. Það kemur okkur ekkert við hvað gert er við nærri helming launa okkar.“