fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

DV afhjúpar Braggabókhaldið: Yfirlit Reykjavíkurborgar stemmir ekki við reikningana – Vantar tugi milljóna

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 16. október 2018 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gögnin sem Reykjavíkurborg gerði opinber um sundurliðun kostnaðar vegna braggans í Nauthólsvík stemma ekki við endanlegan kostnað borgarinnar þar sem það vantar alla reikninga sem voru greiddir vegna framkvæmdanna eftir 24 ágúst síðastliðinn.

Í reikningunum sem DV hefur undir höndum kemur í ljós að í yfirlitið vantar inn reikninga upp á milljónir og í tilvikum Arkibúllunnar og Eflu er virðisaukaskattur ekki tekinn með í reikninginn. Í þeim tilfellum bætist 24% við þá upphæð sem Reykjavíkurborg gerði opinbera, en borgin fær þann virðisaukaskatt endurgreiddann samkvæmt sérákvæði í lögum um virðisaukaskatt.

Í yfirliti Reykjavíkurborgar greiddi borgin Arkibúllunni 28,3 milljónir. Þegar reikningarnir eru skoðaðir og bornir saman við yfirlitið kemur í ljós að Reykjavíkurborg greiddi meira en 35 milljónir króna. Margrét Leifsdóttir, arkitekt hjá Arkibúllunni, sagði í samtali við Mbl í gær að reikningarnir væru laun til arkitektastofunnar og þar væri virðisaukaskatturinn innifalinn.

Hér má sjá hvernig upphæðin lítur út í yfirliti Reykjavíkurborgar:

Hér má svo sjá reikninginn, þar er talan 2.681.081 komin upp í 3.324.540:

 

Sama er uppi á teningnum hjá verkfræðistofunni Eflu. Segir í yfirlitinu frá borginni að Reykjavíkurborg hafi greitt Eflu alls 26,88 milljónir en reikningarnir sýna að upphæðin er í kringum 33,3 milljónir. Hefur því bókhald borgarinnar birt kostnaðinn án virðisaukaskatts þar sem borgin fær hann endurgreiddann.

Hér má sjá stakan reikning frá Eflu í yfirliti Reykjavíkurborgar:

Hér má svo sjá reikninginn sjálfan, þar fer talan úr 2.822.000 í 3.499.280:

Samkvæmt yfirlitinu var heildarsumman við braggann fram í júlí á þessu ári rúmar 405 milljónir króna. Inni í þeirri tölu er ekki virðisaukaskattur á reikninga frá Eflu og Arkibúllunni. En það eru einu fyrirtækin sem ekki var settur virðisaukaskattur á heildarútgjöld þegar Reykjavíkurborg sendi frá sér reikningsyfirlitið yfir heildargreiðslur vegna verkefnsinsins, þar sem virðisaukaskattur af þjónustu verkfræðinga og arkitekta er endurgreiddur. Inni í yfirlitið vantar einnig reikninga upp á milljónir sem voru greiddir verktökum eftir að yfirlitið var sett saman. Um er að ræða reikninga frá því í lok ágúst og september. Nemur upphæðin sem vantar inn í yfirlit Reykjavíkurborgar því mörgum tugum milljóna.

DV hefur reikningana undir höndum og mun í dag og næstu daga birta fréttir upp úr þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“