Karlmaður var handtekinn í miðborg Reykjavíkur um hálf fimmleytið nú síðdegis vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Níu ára gamall sonur mannsins vaar farþegi í bifreiðinni.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Var haft samband við barnavernd í framhaldinu. Ökumaðurinn var svo frjáls ferða sinna að lokinni blóðsýna- og skýrslutöku.
Um 12.20 var tilkynnt um karlmann sem hafði verið að stela varningi úr verslun í hverfi 108. Lögreglan fór á vettvang og var karlmaðurinn fluttur handtekinn á lögreglustöð. Var hann frjáls ferða sinna að lokinni skýrslutöku.
Aðeins nokkrum mínútum síðar var tilkynnt um ungmenni sem hafði verið að stela varningi úr verslun í hverfi 112. Um tvö leytið var síðan tilkynnt um þrjú ungmenni sem höfðu verið að stela varningi úr verslun í hverfinu. Kl 15.20 barst síðan þriðja tilkynningin af þessum toga í hverfi 112 en þá var tilkynnt um ungmenni sem hafði verið að stela varningi úr verslun. Í öllum tilfellum var haft samband við forráðamann viðkomandi og barnavernd tilkynnt um málið.