fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Ágústa neyðist til að flytja í 10 fermetra herbergi með kærastanum – „Ég hélt að ég tilheyrði millistétt“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 11. október 2018 13:25

Ágústa Kolbrún Guðrúnardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

“Ég lenti í bílslysi árið 2011 og fyrir slysabæturnar og aðstoð fjölskyldunnar festi ég kaup á íbúð í Breiðholtinu og stend núna í miðjum eldhúsframkvæmdum. Leigumarkaðurinn setur fólk í þvílík vandræði og margir hafa búið hjá mér sem hafa verið í einhverskonar millibilsástandi, annaðhvort að safna fyrir eða bíða eftir íbúð. Ég minnist þess ekki að ég hafi nokkur tímann búið ein.”

Þetta segir Ágústa Kolbrún Guðrúnardóttir, bílstjóri á farmflutningabifreið, en saga hennar birtist á síðunni Fólkið í Eflingu, en sögurnar af íslensku fólki hafa vakið mikla athygli.

„Ég fór út á vinnumarkaðinn 16 ára gömul. Ég vann á kassa í Bónus, American Style og MS ís í þrjú ár. Hérna hef ég verið Búkollubílstjóri síðan 2016 í styttri og lengri tíma. Þetta eru farmflutningar, flytjum úrgang og önnur efni á milli staða. Búkolla vegur allt upp í 70 tonn með farmi og það má ekki aka henni út á malbikinu,” segir Ágústa. Fyrir utan að vera með próf á Búkollu þá er hún með próf á lyftara og það er á dagskrá hjá henni að taka próf á gröfu. „Ég er búin með bóklega þáttinn en vantar verklega þjálfun. Það er smá hræðsla í manni að maður gæti skemmt gröfuna.“

Móðir Ágústu hefur unnið í Kjötsmiðjunni síðan Ágústa var tíu ára og eru systur hennar snyrtifræðingar. Báðir afar Ágústu voru pípulagningamenn og þegar hún ætlaði að gera upp baðherbergið hjá mér þá ákvað hún að læra pípulagnir. Til þess að eiga efni á náminu neyðist hún til að flytja í 10 fermetra herbergi.

„Núna er ég að vinna eins mikið og ég get, safna fyrir eldhúsinu og skólanum í vetur. Ég ætla að leigja íbúðina mína og flytja inn með kærastanum í 10 fermetra herbergi sem foreldrar hans eiga. Ég tilheyri lágstétt og ekkert má út af bera. Ég hélt að ég tilheyrði millistétt en það eru bara tvær stéttar, lágstétt og hástétt. Millistéttin er að þurrkast út og fólk færist nær þeim ás sem liggur næst þeim,“ segir Ágústa.

Útgjöld hennar eru ekki mikil nema þegar kemur að skóm en hún er dugleg að spara. „Ég reyki ekki og drekk áfengi kannski einu sinni á ári. Að vísu fékk ég upp úr þurru brjálaðan áhuga á skóm og ef ég sé fram á að eiga pening þá kaupi ég mér skó, ég elska hælaskó, og á þrjátíu pör af hælaskóm. Ég er meira að segja með glerskáp og nokkur skópör til sýnis í honum. Ég hafði aldrei hugsað áður um tísku né útlit, langt því frá þegar þessi áhugi á skóm blossaði upp úr þurru.“

Hún vill að tekið verði á húsnæðisvandanum: „Mér finnst að það þurfi að taka á húsnæðisvandanum og mér finnst glatað að gæludýr eru miður vinsæl hjá leigusölum. Síðan finnst mér fáránlegt hvernig farið er með öryrkja og gamla fólkið sem byggði upp landið okkar. En ég hef verið svo upptekin við að gera upp eldhúsið hjá mér að ég fylgist ekki nógu vel með.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Í gær

Ísraelar hefndu sín í nótt: Hvað gera Íranir núna?

Ísraelar hefndu sín í nótt: Hvað gera Íranir núna?
Fréttir
Í gær

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel
Fréttir
Í gær

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt