fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Leoncie krefst þess að fá árgjaldið í FTT endurgreitt: „Ég troðfylli alla skemmtistaði hvar sem er í heiminum og þið þolið það ekki“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 6. janúar 2018 14:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Leoncie hefur skrifað Jóni Ólafssyni, framkvæmdastjóra Félags tónskálda og textahöfunda, bréf og sent afrit af því til DV. Leoncie krefst þess að fá árgjald sitt í félagið endurgreitt en hún er mjög óánægð með litla spilun á tónlist hennar á útvarpsstöðvum. Á síðasta tímabili náði spilunin lágmarki því Leoncie fékk ekki eina krónu í stefgjöld, að hennar sögn.

Bréfið er opinskátt og skrautlegt hvað orðfæri snertir, eins og Leoncie er tamt. Árgjaldið er 8.000 krónur sem Leoncie krefst nú að fá endurgreitt.

Bréfið er svohljóðandi:

Viltu vinsamlegast Endurgreiða mér Ftt „Ársgjaldið“.

Árið 2018 er rétt byrjað, og Ég passa alls ekki í ykkar „klikuklubb“.
Ein mæting með manninum minum , var nóg til að gubba. It´s Torture to listen to the Icelandic music quacks screaming in front of the microphone.

Mér er alltaf útilokað frá ykkar FTT uppákomum, skemmtiatriðum, en hvergi annar staðar í heiminum er racismi og svona gróf mismunun leyfilegt.

Ég var félagi lika í Koda osv, í Danmörku, löngu áður en kom til islands og Enginn þarna í Danmörku, Mismunaði mér,eins og hér á íslandi.

Danskir ´tonlistarmenn“ voru ekki að þjást af Minnimáttarkennd í minn garð. Þið á íslandi eru alveg Glataðir. Þið eru bara í tónlist til að snykja Styrki, listamannlaunum, Bætur, Oh My God!

Svo….Ef þú Endurgreiðir mér Ftt Ársgjaldið 8.000 kr, ´sem er Peningasóun, Ég vil vera ánægð að losna við ykkar fordóma, Mismunun Fýluandlitin og Óréttlæti í minn garð.

Allir vita um ykkar fordómar í minn garð.. Ég troðfylli Alla skemmtistaði hvar sem er í heiminum, og þið þolið það ekki.

Þess vegna þú,þinir vínir og samstarfsmenn í rúv osv, útiloka mig
.
At my Christmas Show,in December 2017 in Reykjavik, which was Fantastic, Housefull with all my Beloved fans, screaming for MORE LEONCIE,My „Mr. December Bikini“ auctioned fantastic!
You´ll in FTT, Stef and FIH would Squirm with Jealousy!

I was told that Nobody, wanted to see or hear Stefan Hilmarsson,and all his frozen female losers on stage and that´s why HE got a job from his pals,at the desk in Stef.
Please Tell him that I will pray for him to get well soon. I do pray fervently each day for ALL you Icelandic HATERS.
Jenny Daviðsdóttir did a much better job than the Fake Icelandic Socrates= Skrifstofustjóri Stefs.
Ég Vil Bara Hætta í FTT Ef Þú Borga Mér Tilbaka.Ársgjaldid. Þér er lika Velkominn að borga mér Bonus fyirr MISMUNUN ykkar.

Bestu Áramóta Kveðjur

„Quote Sylvester Stallone“rest in pieces“
Icy Spicy Leoncie

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala