Á fimmtudag tilkynnti Morgunblaðið um fimm heppna áskrifendur sem hlutu í vinning gjafabréf fyrir tvo til Cleveland í Bandaríkjunum. Svo vildi til að meðal þeirra heppnu er alþingismaður og svo skemmtilega vill til að það er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, getur tekið sér frí frá Alþingi á næstunni og skellt sér til Cleveland. Lítið hefur farið fyrir Njáli á þingi en hann settist fyrst á þing árið 2016. Hann situr meðal annars í fjárlaganefnd og atvinnuveganefnd og er formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins.