Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni í gærkvöldi em hafði fest bifreið sína í polli. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar kemur einnig fram:
„[Ökumaðurinn] komst hvorki lönd né strönd. Hann var á ferð eftir Hafnargötu í Keflavík en beygði síðan inn á lóð þar sem pollurinn var og var íslag í botni hans. Spólaði bifreiðin á öllum hjólum og jós vatni út á Hafnargötuna en allt kom fyrir ekki. Ökumaður játaði síðan áfengisneyslu í viðræðum við lögreglumenn og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð.“
Þrír aðrir ökumenn voru kærðir fyrir of hraða akstur um helgina og einn til viðbótar ók sviptur ökuréttindum.