fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Jón Garðar í samkeppni við Eldum rétt

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 20. janúar 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni var nýtt fyrirtæki á máltíðamarkaði kynnt til leiks. Fyrirtækið heitir Einn, tveir & elda og mun bjóða upp á tilbúna matarpakka til eldunnar líkt og Eldum rétt. Íslendingar hafa tekið hugmyndafræðinni fagnandi en hið nýja fyrirtæki hyggst skapa sér sérstöðu með því bjóða upp á aukið úrval rétta og gestapakka með uppskriftum frá vinsælustu kokkum landsins, til dæmis Ragnari Frey (Lækninum í eldhúsinu) og Jóa Fel.

Í forsvari fyrir fyrirtækið er athafnamaðurinn Jón Arnar Guðbrandsson, einn eigenda Lemon, og Gunnar Már Sigfússon einkaþjálfari, sem hefur getið sér gott orð sem talsmaður lágkolvetnalífsstílsins.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Einn, tveir og elda sé í eigu Dagný & co. Framkvæmdastjóri þess fyrirtækis er Jón Garðar Ögmundsson, fyrrverandi rekstraraðili McDonald’s á Íslandi og veitingastaðarins Metro.

Rekstrarsaga Jóns Garðars er ekki beysin en fyrir tæpum tveimur árum hlaut hann tvo dóma fyrir umfangsmikil skattsvik. Annars vegar vegar í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að standa ekki skil á opinberum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna McDonald’s frá árinum 2009 og 2010. Hins vegar hlaut hann 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir sömu brot hjá Metro á árunum 2011 og 2012. Samtals þurfti Jón Garðar að greiða 115 milljónir í sektir í ríkissjóð fyrir brotin. Í kjölfarið var Jón Garðar úrskurðaður gjaldþrota en engar eignir fundust upp í 166 milljón króna kröfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus
Fréttir
Í gær

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“