Viðari Guðjohnsen hefur tekist að gefa froðukenndri borgarpólitík allhressilegt hjartastuð á síðustu dögum. Viðar er ekki talinn líklegur til að leiða Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum og segir hann sjálfur að sigurlíkur sínar í leiðtogakjöri flokksins séu litlar sem engar. Tilgangurinn, ef hann er ekki að verða oddviti, hlýtur þá að vera að láta hina frambjóðendurna líta út fyrir að vera hófstilltir skynsemissinnar í samanburði.