fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Fatlaður karlmaður tekinn með kíló af kókaíni innvortis

Auður Ösp
Fimmtudaginn 18. janúar 2018 09:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í 46 fíkniefnamálum sem upp komu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á síðastliðnu ári, 2017, lagði rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum (LSS) hald á rúmlega 42 kíló af hörðum fíkniefnum. Þar af voru rúm 35.000 grömm af kókaíni, tæp 7.000 grömm af amfetamíni, 196 grömm af metamfetamíni og 61 gramm af ecstasy (MDMA). Auk þessa voru haldlögð rúmlega 240 grömm af hassi. Rannsóknir allra þessara mála voru á borði rannsóknardeildar LSS.
Undirstrikað er að um bráðabirgðatölur er að ræða, sem kunna að taka smávægilegum breytingum þegar endanlegt heildaruppgjör ársins liggur fyrir.

Sá einstaklingur er reyndist hafa mesta magn fíkniefna innvortis var belgískur mikið fatlaður karlmaður sem var með rúmlega eitt kíló af kókaíni í 106 pakkningum. Er það mesta magn sem fundist hefur í einum einstaklingi í innvortis fíkniefnamálum hingað til.

Ljósmynd/facebooksíða Lögreglustjórans á Suðurnesjum
Ljósmynd/facebooksíða Lögreglustjórans á Suðurnesjum

Styrkur haldlagðra efna í innvortis málum er yfirleitt mjög mikill eða um 90 prósent. Styrkur í haldlögðum neysluskömmtum á götunni er á bilinu 7 – 15 prósent. Því má ætla að margfalda megi ofangreind 42 kíló með 7 eða 8 sem gerir þá rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum á götum úti.

Ljósmynd/facebooksíða Lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Ljósmynd/facebooksíða Lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Langflest þessara mála eiga upptök sín hjá tollvörðum sem hafa með höndum mjög virkt og skipulegt eftirlit í flugstöðinni. Sú leið að reyna að smygla fíkniefnum þá leiðina verður því að teljast mjög áhættusöm fyrir þá sem það reyna. Að auki má minna á afdrif rúmlega tvítugs íslensks karlmanns sem kom með 42 pakkningar innvortis til landsins í október. Ein pakkningin tók að leka og var hann fluttur lífshættulega veikur með hraði á Landspítalann þar sem hann undirgekkst rúmlega 3ja klukkustunda skurðaðgerð.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“