Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, velti fyrir sér á Facebook ófrjósemisaðgerðum bæði kvenna og karla en nýverið birti Vísir viðtal við unga konu sem hugðist fara í slíka aðgerð. Brynjar segir að ef tíðarandinn sé að konur vilji ekki lengur eignast börn þá sé kannski ekki ástæða til að hafa áhyggjur af ragnarökum svo sem loftslagsbreytingum.
„Mörgum er tíðrætt um svokallaðar „Herraklippingar“ og aðrar ófrjósemisaðgerðir, sem verða sífellt vinsælli. Herraklipping er ekki réttnefni því lykilverkfærið í þessari aðgerð er lóðbolti, sem að vísu er algert aukaatriði í umræðunni. Áhyggjur manna virðast snúast um hve ungt fólk fari í ófrjósemisaðgerðir nú um stundir. Ung kona kom í fjölmiðla nýlega og lýsti því að hún hefði engan áhuga á barneignum og hygðist jafnvel fara í ófrjósemisaðgerð til að losna við óþægindin af getnaðarvörnum. Svo væri um margar nútímakonur. Kannski er óþarfi að hafa áhyggjur af loftslagsbreytingum og ragnarökum tengdum þeim ef tíðarandinn verður lengi sá að konur vilji ekki eiga börn,“ skrifar Brynjar.
Þar vitnar Brynjar í viðtal Vísis við Tinnu Haraldsdóttur, sem er 27 ára og barnlaus. Hún vill þrátt fyrir það fara í ófrjósemisaðgerð. „Það er frekar einföld ástæða, hún er bara sú að ég ætla ekki að eignast nein börn. Og þetta er einfaldasta leiðin til að koma í veg fyrir barneignir,“ sagði Tinna.
Brynjar segir enn fremur að svona aðgerðir eigi skattgreiðendur ekki að greiða heldur viðkomandi: „En enginn hefur áhyggjur af því hver greiðir fyrir allar þessar herra- og dömuklippingar. Engin umræða er um hvað er heilbrigðisþjónusta sem eðlilegt er að skattgreiðendur greiða fyrir og hvað eru læknisverk sem koma heilbrigði og heilsu okkar lítið við. Ekki veit ég hvernig þeim málum er háttað nú en veit þó fyrir víst að fyrir hálfum öðrum áratug eða svo báru skattgreiðendur 90% af kostnaði við ákveðna herraklippingu. Kann að hafa verið einstakt tilfelli og réttlætt með vísan til almannahagsmuna.“